Erlent

Hermaðurinn sem særðist í skotárásinni er látinn

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ekki er víst hversu margir árásarmennirnir voru.
Ekki er víst hversu margir árásarmennirnir voru. Vísir/AFP
Hermaður sem særðist í skotárásinni við kanadíska þinghúsið er látinn. BBC greinir frá. Lögreglan leitar nú að árásarmönnunum en ekki er víst hversu margir voru að verki.

Einn árásarmannanna var skotinn til bana fyrr í dag af lögreglu. Þar sem talið er að fleiri skotárásum hafi verið hleypt af eftir að sá maður lést grunar lögreglu að fleiri hafi verið að verki.

Árásin átti sér stað nokkrum klukkustundum eftir að Kanada hafði hækkað viðbúnaðarstig sitt vegna hryðjuverkaárása þar sem annar hermaður var myrtur á mánudag.

Fyrr í þessum mánuði tilkynnti Kanadastjórn að hún hygðist taka þátt í loftárásum gegn hryðjuverkasamtökunum IS í Írak. Það er hins vegar ekkert sem staðfestir að skotárásin í dag tengist IS.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×