Viðskipti innlent

Herferð gegn tekjulágum og atvinnulausum

Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar
Forystumenn í verkalýðshreyfingunni segja að hækkun virðisaukaskatts á matvæli skerði kjör þeirra sem lítið hafi. Undirbúningur að gerð nýs kjarasamnings er að hefjast og þeir segja þetta ekki gott innlegg.
Forystumenn í verkalýðshreyfingunni segja að hækkun virðisaukaskatts á matvæli skerði kjör þeirra sem lítið hafi. Undirbúningur að gerð nýs kjarasamnings er að hefjast og þeir segja þetta ekki gott innlegg. Fréttablaðið /Vilhelm
Formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands (SGS) segja að ríkisstjórnin sé í herferð gegn tekjulágu fólki og atvinnulausum, þess sjáist glögg merki í fjárlagafrumvarpinu.

Þeir telja átök líkleg á vinnumarkaði í vetur. Það geti orðið þrautin þyngri að koma nýjum kjarasamningi á koppinn.

Samningar á almenna vinnumarkaðnum eru lausir eftir áramót og samningagerðin að fara af stað. Fyrst á að reyna að ná utan um sérkröfur, síðan á að takast á um krónur og aura. Þó ríkisstjórnin sé ekki beinn aðili að kjarasamningum á almenna markaðnum er það þó efnahagsstefna stjórnvalda á hverjum tíma sem markar ytra umhverfi kjarasamninga.

Sigurður Bessason
Á næstunni ætla menn að vega og meta hverju síðustu kjarasamningar skiluðu verkafólki í raun. Hvort það hafi fengið einhverjar kjarabætur.

„Frumvarp til fjárlaga kemur eins og skrattinn inn í umræðu um kjarasamninga. Sú nálgun að segja að það breyti engu að hækka virðisauka á matvælum vegna þess að þeir fái það leiðrétt í gegnum barnabætur gengur ekki upp í hugum fólks,“ segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar og talsmaður Flóabandalagsins.

Í sama streng tekur Björn Snæbjörnsson, talsmaður Starfsgreinasambandsins. Björn segir alvarlegt að stjórnvöld ætli að stytta bótatímabil atvinnuleysisbóta um hálft ár. Atvinnulausir hverfi ekki úr samfélaginu þó þeir fari af bótum. „Það er verið að velta vandanum yfir á sveitarfélögin en þær bætur sem fólk fær lækka. Sumir fá ekkert því það ræðst meðal annars af tekjum maka hvort fólk á rétt á bótum frá sveitarfélaginu svo og af ýmsum öðrum þáttum,“ segir Björn og bætir við að með þessu sé enn frekar verið að skerða kjör þeirra sem minnst hafi.

Björn Snæbjörnsson
Sigurður segir að verkalýðshreyfingin ætli að reyna að fá stjórnvöld til að draga fyrirhugaðar breytingar til baka en er ekki vongóður um að það takist.

„Við gerð síðustu kjarasamninga setti ríkisstjórnin fram bókun um að breytingar á virðisaukaskattskerfinu ættu að fara fram í samráði við launþegahreyfinguna. Það voru hins vegar engar viðræður við okkur. Við fréttum af fyrirhuguðum breytingum í fjölmiðlum,“ segir Sigurður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×