Innlent

Herdís sækist eftir 5. sæti

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Herdís Anna Þorvaldsdóttir.
Herdís Anna Þorvaldsdóttir. Mynd/Aðsend
Herdís Anna Þorvaldsdóttir gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem fer fram 3. septeber næstkomandi.

Herdís er fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn Hverfisráðs Grafarvogs auk þess að vera varamaður í Umhverfis­ og skipulagsráði, Menningar­ og ferðamálaráði og Skóla­ og frístundaráði Reykjavíkur. Herdís er jafnframt formaður Efnahags­ og viðskiptanefndar Sjálfstæðisflokksins ásamt því að sitja í stjórn Hvatar, félagi sjálfstæðiskvenna í Reykjavík og framkvæmdastjórn Landsambands Sjálfstæðiskvenna

Eiginmaður Herdísar er Haukur Þór Adólfsson, pípulagningameistari. Þau búa í Grafarvogi ásamt þremur börnum.

Herdís er framkvæmastjóri þyrluþjónustunnar Helo og hefur víðtæka reynslu af atvinnulífinu. Hún er eina konan sem gegnir stöðu Accountable Manager gagnvart flugrekstrarsviði Samgöngustofu á landinu í dag. Hún hefur látið til sín taka í ýmsum félags­ og góðgerðastörfum. Hún er formaður flugnefndar SAF, Samtaka ferðaþjónustunnar, er í stjórn Reykjavik International School og sat í ráðgefandi stjórn Valamed ehf. (sem er sprotafyrirtæki á heilbrigðissviði).

Herdís er með MBA, meistaragráðu í viðskiptastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík og útskrifaðist með diplóma í alþjóðaviðskiptum frá sama skóla, hún er einnig tækniteiknari. Hún sat í gæðaráði MBA námsins, var formaður stjórnar Embla, félags kvenna með MBA frá HR og hefur stýrt fjáröflun fyrir UN Women. Herdís hefur unnið margvísleg verkefni tengd markaðssetningu og stefnumótun og vann fyrir utanríkisráðuneytið að sérverkefni þar sem hún gerði úttekt og skrifaði skýrslu um þátttöku Íslands í Expo heimssýningunum og markaðssetningu ráðuneytisins á Íslandi erlendis.

Herdís leggur áherslu á þau málefni sem tengjast þekkingu og starfsreynslu hennar, eins og efnahagsmál, ferðaþjónustuna, menntamál, samgöngur og umhverfismál.

„Ég tel það vera lykilatriði að viðskiptaumhverfið sé einfalt og aðgengilegt og að fyrirtæki og einstaklingar njóti frelsis til orðs og athafna. Við eigum að halda áfram að einfalda skattkerfið og létta af tollum og skapa hvetjandi umhverfi en ekki íþyngjandi. Ég vil stuðla að aukinni samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og laða að okkur spennandi atvinnutækifæri og mannauð. Við þurfum að halda áfram uppbyggingu innviða, vanda okkur við forgangsröðun í samgöngum með umferðaröryggi í forgrunni og auka valfrelsi í mennta­ og heilbrigðismálum. Ég vil auka sveigjanleika í lífeyriskerfinu og endurskoða tekjutengingar. Þá legg ég áherslu á sjálfbærni í umgengni okkar við umhverfið og náttúruna,“ segir í tilkynningu frá Herdísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×