Innlent

Herbert Guðmundsson á leið í gjaldþrot

Samúel Karl Ólason skrifar
„Það eina sem menn geta náð af mér núna er að tappa af mér blóðinu.“
„Það eina sem menn geta náð af mér núna er að tappa af mér blóðinu.“
„Endanlega frjáls,“ segir Herbert í samtali við Vísi, en hann sótti í morgun um að vera tekinn til gjaldþrotaskipta. „Ég ætla bara að gefast upp með báðum.“ Ástæða þess að Herbert hefur beðið sýslumann um að vera tekinn til gjaldþrotaskipta er um tíu milljóna króna lögkrafa frá húsfélaginu að Prestbakka ellefu til 21.

„Það eina sem menn geta náð af mér núna er að tappa af mér blóðinu.“

Hús Herberts verður boðið upp og annað uppboð verður þann 15. desember, sem er afmælisdagur Herberts. „Þannig að ég fæ rosalega fína jólagjöf í ár.“

Árið 2005 hófust deilur milli eigenda í raðhúsalengjunni við Prestbakka vegna viðgerða þökum húsanna. Upp úr þeim deilum hófust mikil málaferli sem staðið hafa um árabil. Herbert tapaði þeim málaferlum.


Tengdar fréttir

Hæstiréttur dæmir Herbert til að greiða milljónir

Herbert Guðmundsson söngvari og Svala Guðbjörg Jóhannesdóttir, fyrrverandi eiginkona hans, voru í dag dæmd til að greiða 3,6 milljónir króna vegna vangoldinna hússjóðsgjalda. Hæstiréttur kvað upp dóminn í dag og staðfesti þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, sama efnis, sem kveðinn var upp 25. júní 2010.

Herbert þarf að greiða fyrir þakviðgerðina

Dómur er fallinn í "þakmálinu" svokallaða, en þar stríddi Herbert Guðmundsson söngvari við nágranna sína og neitaði að taka þátt í viðgerðum á raðhúsalengjunni sem hann býr í. Dómari komst að þeirri niðurstöðu að Herbert ætti að greiða 3,6 milljónir króna til húsfélagsins auk 1,5 milljóna í málskostnað.

Herbert sigraði í hæstarétti - Málið rústaði hjónabandinu

„Mér finnst að réttlætið hafi unnið í þessu máli,“ segir Herbert Guðmundsson, söngstjarna. Hæstiréttur vísaði í dag máli húsfélagsins að Prestbakka 11-21 gegn Herberti og fyrrum konu hans, Svölu Guðbjörgu Jóhannesdóttur, frá héraðsdómi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×