Viðskipti erlent

Herbalife sætir rannsókn FBI

Bjarki Ármannsson skrifar
Söluaðferðir fyrirtækisins hafa vakið athygli bandarískra yfirvalda.
Söluaðferðir fyrirtækisins hafa vakið athygli bandarískra yfirvalda. Vísir/AFP
Bandaríska alríkislögreglan, FBI, rannsakar um þessar mundir heilsurisann Herbalife samkvæmt fréttaveitunni Reuters. Málið er talið snúa að dreifingarkerfi fyrirtækisins sem vakið hefur mikla athygli og vogunarsjóðsstjórinn William Ackman hefur kallað hreint og beint pýramídasvindl.

Herbalife býður upp á bæði vörur og þjónustu víða um heim, meðal annars á Íslandi, með það að stafni að hjálpa fólki að léttast og bæta næringu þess. Fyrirtækið notast að miklu leyti við sjálfstæða dreifingaraðila sem græða sjálfir á sölu í svokölluðu „Multi-level marketing“ kerfi. Dreifingaraðilar græða frekar á því að ráða nýja aðila heldur en á sjálfri sölunni en þessi viðskiptahegðun virðist hafa vakið athygli FBI.

Fyrrum dreifingaraðilar Herbalife segja í viðtali við Reuters að lögreglan hafi haft samband við það til að forvitnast um kerfið og þá sérstaklega hvernig nýir aðilar eru ráðnir. Herbalife hefur ávallt neitað því að um píramídasvindl sé að ræða.

Viðskiptaeftirlit Bandaríkjanna, FTC, hefur einnig rannsakað Herbalife frá því í síðasta mánuði, meðal annars vegna ásakana um að fyrirtækið hafi gerst sekt um mismunun gagnvart minnihlutahópum.

Herbalife skilaði sölutölum upp á rúmlega 537 milljarða íslenskra króna í fyrra en verð á hlutabréfum fyrirtækisins féll um tæplega fjórtán prósent eftir að fregnir af rannsókn FBI bárust fyrst á föstudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×