Innlent

Héraðssaksóknari hefur tvær vikur til stefnu í máli Birnu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Skipverjinn er grunaður um að hafa banað Birnu Brjánsdóttur á milli klukkan sex og sjö að morgni 14. janúar. Hann hefur sætt gæsluvarðhaldi samfleytt í tíu vikur.
Skipverjinn er grunaður um að hafa banað Birnu Brjánsdóttur á milli klukkan sex og sjö að morgni 14. janúar. Hann hefur sætt gæsluvarðhaldi samfleytt í tíu vikur. vísir/anton brink
Héraðssaksóknari þarf að taka ákvörðun um hvort gefin verði út ákæra á hendur manninum sem grunaður er um að hafa ráðið Birnu Brjánsdóttur bana í janúar síðastliðnum innan tveggja vikna. Maðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi í tíu vikur en lögum samkvæmt má ekki halda mönnum lengur en í tólf vikur, nema ákæra hafi verið gefin út.

Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari segist í samtali við Vísi ekki geta tjáð sig um framgang mála, að öðru leyti en því að embættið hafi byrjað að yfirfara öll gögn um leið og þau bárust, þann 17. mars síðastliðinn. Embættið hafði þó fengið einhver málsgögn fyrir þann tíma.

Mál Birnu var sent héraðssaksóknara eftir að lífsýnarannsóknum lauk en lífsýnin voru send til Svíþjóðar til greiningar. Niðurstöður rannsóknanna styðja grun lögreglunnar um að maðurinn sem situr í haldi, skipverji af togaranum Polar Nanoq, hafi ráðið Birnu Brjánsdóttur bana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×