Viðskipti innlent

Hérað losnaði úr fjötrum þegar skuldafenið hvarf

Kristján Már Unnarsson skrifar
Samfélögin við innanverðan Húnaflóa voru leyst úr fjötrum og tóku fyrst að hjarna við eftir að óvenju hrikalegar skuldir, sem tengdust 140 heimilum vegna stofnfjárkaupa í sparisjóði, voru felldar niður.

Skuldafenið sem stofnfjáreigendur Sparisjóðs Húnaþings og Stranda sátu í eftir bankahrunið ógnaði hreinlega byggð í heilu héraði, svo háar voru tölurnar, eins og nefnt var í fréttum Stöðvar 2 fyrir fimm árum. Algengt var að einstök heimili skulduðu 15-20 milljónir króna vegna stofnfjárkaupa og dæmi voru um fjölskyldur sem skulduðu á annað hundrað milljóna króna.

Síðar var upplýst að nokkrir starfsmenn sparisjóðsins skulduðu yfir eitthundrað milljónir króna og sumir í kringum tvöhundruð milljónir króna.

Höfuðstöðvar Sparisjóðs Húnaþings og Stranda voru á Hvammstanga.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Landbankinn átti kröfurnar, en ákvað að fella þær niður eftir hæstaréttardóm fyrir þremur árum sem ógilti kröfu í sambærilegu máli. Reimar Marteinsson kaupfélagsstjóri, sem þekkti vel stöðuna, segir að fjöldi fólks hafi skuldað háar fjárhæðir eftir fall sparisjóðsins en Landsbankinn hafi fallist á að fella þær niður.

„Á þeim forsendum að það hafi verið ólöglega að þessu staðið af hálfu sparisjóðsins hér og sparisjóðsins í Keflavík. Það skipti sköpum fyrir samfélagið að létta aðeins á því,“ sagði Reimar.

Í raun var samfélagið á starfssvæði sparisjóðs Húnaþings og Stranda leyst úr fjötrum með skuldaniðurfellingunni. Reimar kaupfélagsstjóri segir stemmninguna hafa breyst þegar það gerðist. 



„Menn þorðu lítið að hreyfa sig og gátu kannski lítið hreyft sig líka, allavega þeir sem voru með á bakinu stórar fjárhæðir,“ segir Reimar. 

„Já, ég fann mun. Fólk gat farið að framkvæma út til sveita og annarsstaðar, þar sem menn voru kannski að halda aftur af sér á þessum tíma, á þessum árum þegar þetta lá yfir.“


Tengdar fréttir

Málefni SpKef vekja furðu og reiði í Húnaþingi

"Fréttaflutningur sl. vikna af málefnum, stöðu og starfsháttum Sparisjóðs Keflavíkur sem m.a. er byggður á áðurnefndri skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis og skýrslu Fjármálaeftirlitsins um starfshætti sparisjóðsins frá september 2008 vekur furðu og reiði í Húnaþingi.“

Íbúar í Húnaþingi vestra himinlifandi

Sveitarstjórnarmaður í Húnaþingi vestra er himinlifandi yfir því að Landsbankinn hafi viðurkennt málflutning stofnfjáreigenda og fellt niður lán til þeirra að eigin frumkvæði. Þungu fargi var létt af skuldurum sem margir hverjir stefndu í þrot.

Skuldamálin við Húnaflóa eitt það sorglegasta í hruninu

Fjármálaherra og bankastjóri Landsbankans segja báðir að skuldastaða sparisjóðseigenda við Húnaflóa sé eitt það sorglegasta sem komið hafi á þeirra borð. Hvorugur treystir sér til að lofa þeim neinni sérmeðferð umfram aðra skuldara.

Á annað hundrað stofnfjáreigenda bíður eftir svörum

Á annað hundrað stofnfjáreigenda í Sparisjóði Húnaþings sem skulda á þriðja milljað króna bíða nú milli vonar og ótta eftir svörum um hvort dómar héraðsdóms í stofnfjármálum í gær, hafi fordæmisgildi í málum þeirra. Ljóst er að margir horfa til niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í gær í prófmálum Íslandsbanka gegn stofnfjáreigendum í Byr og Sparisjóði Norðurlands. Þar voru stofnfjáreigendur sýknaðir af greiðslukröfu bankans.

Landsbankinn fellir niður lán vegna stofnfjárkaupa

Landsbankinn hefur ákveðið að fella niður rúmlega 500 lán til einstaklinga og 30 lán sem veitt voru lögaðilum til kaupa á nýju stofnfé í Sparísjóðnum í Keflavík, Sparisjóði Húnaþings og Stranda og Sparisjóði Vestfirðinga í lok árs 2007.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×