Bíó og sjónvarp

Hera Hilmarsdóttir leikur á móti Ben Kingsley í An Ordinary Man

Birgir Olgeirsson skrifar
Hera Hilmarsdóttir.
Hera Hilmarsdóttir. Vísir/Getty
Edduverðlaunahafinn Hera Hilmarsdóttir hefur landað hlutverki í kvikmyndinni An Ordinary Man sem bandaríska fyrirtækið Enderby Entertainment framleiðir. Mótleikari Heru í myndinni er ekki af verri endanum en það er enginn annar en Óskarsverðlaunahafinn Ben Kingsley. Frá þessu er greint á vef Hollywood Reporter.

Myndin segir frá stríðsglæpamanni í felum, leikinn af Kingsley, sem myndar samband við húshjálpina sína, leikin af Heru Hilmarsdóttur. Þegar stríðsglæpamaðurinn finnur fyrir því að hann er ekki lengur óhultur áttar hann sig á því að húshjálpin er eina manneskjan sem hann getur treyst.

Breski leikarinn Peter Serafinowicz, sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk sín í kvikmyndum á borð við Spy og Guardians of the Galaxy, leikur einnig í myndinni.

Ben Kingsley.Vísir/Getty
Tökur hennar munu hefjast í Belgrad í Serbíu í næstu viku. Leikstjóri myndarinnar er Brad Silberling sem á að baki myndirnar Lemony Snicket's A Series of Unfortunate Events, City of Angels og Casper.

Hera Hilmarsdóttir, sem gengur undir nafninu Hera Hilmar ytra, er þekktust hér heima fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Vonarstræti sem kom út í fyrra en hún hlaut Edduverðlaunin fyrir leik sinn í henni.

Hún hefur einnig komið fyrir í stóru hlutverki í 25 þáttum af bandarísku sjónvarpsseríunni Da Vinci´s Demons eftir hinn þekkta handritshöfund David S. Goyer.

Á verkefnalista Heru á vefnum IMDb.com kemur fram að hún muni leika á móti Josh Hartnett í myndinni Mountains and Stones og einnig í kvikmyndinni Alleycats.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×