Hér má sjá hvernig heiðagæs vegnar við Kárahnjúka 17. maí 2012 22:30
Viðamiklar rannsóknir á áhrifum stórframkvæmdanna á Austurlandi á síðasta áratug þykja einstakar í heiminum en hartnær fimmtíu þættir eru til skoðunar. Þegar framkvæmdirnar hófust við Kárahnjúka og á Reyðarfirði settu Landsvirkjun og Alcoa í gang svokallað sjálfbærniverkefni til að fylgjast með áhrifunum en fjallað var um stöðu þess á fundi í Reykjavík í vikunni. Umsjónin er í höndum Þekkingarnets Þingeyinga og í viðtali í fréttum Stöðvar 2 segir Guðlaug Gísladóttir verkefnastjóri að þetta sé einstakt á heimsvísu. Ekkert verkefni af þessu tagi af þessari stærðargráðu hafi áður verið sett á laggirnar í heiminum. Verkefnið er kostað af fyrirtækjunum en andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar, eins og Landvernd, þáðu boð um þátttöku. Björgólfur Thorsteinsson, fyrrverandi formaður Landverndar, segir ástæðuna þá að þeir hafi viljað vera vissir um að, sérstaklega umhverfisþættirnir, væru mældir á réttan hátt. Guðlaug segir verkefnið hafa gríðarmikið gildi þar sem þarna sé verið að nota vísindalegar aðferðir til að rannsaka áhrif álvers og virkjunar á umhverfi, efnahag og samfélag. Á vefnum sjálfbaerni.is má fylgjast með 46 mismunandi þáttum; 16 um samfélagið, 24 á sviði umhverfis og 5 efnahagsþáttum. Þar má til dæmis sjá þróun fasteignaverðs á Austurlandi, hvernig heiðagæs vegnar við Hálslón og hver efnahagslegur ábati er við þjóðarframleiðslu. En er hægt að treysta því að þetta sé hlutlaust mat? „Við höfum ekki ástæðu til að ætla annað en að það sé hægt að treysta þessum niðurstöðum," svarar Björgólfur Thorsteinsson. Hvenær verður svo unnt að kveða upp stóra dóm? „Ég segi eftir 20 ár," svarar Guðlaug.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira