Innlent

Hér er gosið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Staðsetning gossins.
Staðsetning gossins. Mynd/Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur birt mynd sem sýnir nákvæma staðsetningu eldgossins í Holuhrauni. Líkt og greint hefur verið frá á Vísi í kvöld hófst eldgos rétt norðan Dyngjujökuls upp úr miðnætti.

Svo virðist sem eldgosið hafi náð hámarki um eittleytið en dregið hefur úr virkni eftir því sem liðið hefur á nóttina.

Myndin hér að ofan er unnin af Ingibjörgu Jónsdóttur hjá Jarðvísindastofnun upp úr gögnum NASA og USGS. Gosið er um sex kílómetra fyrir norðan Dyngjujökul og um 15-20 kílómetra sunnan við Öskju.

Frá gosinu í nótt.Mynd/Þorbjörg Ágústsdóttir & University of Cambridge

Tengdar fréttir

Bíða átekta í Þingeyjarsýslu

Ingólfur Freysson, formaður neyðarnefndar í Þingeyjarsýslu, var einn á vakt þegar Vísir náði af honum tali á öðrum tímanum í nótt.

Eldgos hefur ekki áhrif á flugumferð

"Við sjáum ekki á þessu stigi að þetta hafi áhrif á flug okkar. Hugsanlega yrðu minniháttar breytingar gerðar en ekki mikið meira en það.“

Gosið hófst upp úr miðnætti

„Það eru sömu upplýsingar og við erum að fá,“ segir Rögnvaldur Ólafsson í Samhæfingarmiðstöð Almannavarna í samtali við Vísi aðspurður hvort gosið hafi minnkað töluvert.

Sérfræðingur Veðurstofunnar: Sprungan er nokkur hundruð metra löng

"Það sem við vitum núna er að við höfum fengið staðfestingu um eldgos í gegnum vefmyndavélar ,“ segir Melissa Anne Pfeffer, sérfræðingur á sviði ösku- og efnadreifingar, í samtali við Vísi í nótt en hún var stödd í höfuðstöðvum Veðurstofu Íslands.

Fundað í samhæfingarmiðstöðinni

Á annan tug manns eru mættir til vinnu í Samhæfingarmiðstöð almannavarna í Skógarhlíð sökum þess að eldgos er hafið í Holuhrauni á milli Dyngjujökuls og Öskju norðan við Vatnajökul.

Sprungan talin vera um 1 kílómetri á lengd

Talið var í upphafi að sprungan, sem er um fimm kílómetra norðan Dyngjujökuls og sunnan Öskju, væri 100-300 metra löng. Nú virðist sem hún sé töluvert lengri.

Sofa í Dreka tilbúnir að mæta á vaktina í fyrramálið

„Það hefur dregið mikið úr þessu. Upp úr eitt var þetta talsvert meira en það er núna,“ segir Benedikt Ófeigsson hjá Veðurstofunni sem fylgst hefur með gangi mála í námunda við gosið í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×