Sport

Hér er Conor að æfa með Gunnari | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Skjáskot
Conor McGregor tilkynnti óvænt í gærkvöldi að hann væri hættur að berjast eins og frægt er orðið. En hann mætti samt á æfingu í Mjölni í gær.

Sjá einnig: Conor segist vera hættur

McGregor kom til Íslands í byrjun vikunnar til að æfa með Gunnari Nelson, sem er að æfa fyrir UFC-bardaga í Rotterdam í Hollandi þann 8. maí.

Á myndbandinu hér fyrir neðan, sem birtist á Facebook-síðu Mjölnis, eru þeir félagar Gunnar og Conor að taka á því. Gera má ráð fyrir því að Írinn verði áfram hér á landi við æfingar næstu dagana að minnsta kosti en framtíð hans í UFC er í mikilli óvissu.

MMA

Tengdar fréttir

Conor fær ekki að keppa á UFC 200

Hlutirnir gerðust hratt hjá Conor McGregor í gærkvöldi. Nokkrum tímum eftir að hann tilkynnti á Twitter að hann væri hættur sagði Dana White, forseti UFC, að hann myndi ekki keppa á UFC 200.

Heimspressan fjallar um McGregor

Hvort sem Conor McGregor stendur við Twitter-færslu sína er ljóst að hún hefur vakið gríðarlega athygli.

Conor segist vera hættur

Conor McGregor staddur á Íslandi og tilkynnti þetta á Twitter-síðu sinni í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×