Lífið

Hér er bæði skákmót og fagnaðarfundur

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Ég hef bara verið verkfæri í höndum Hlyns Þórs Magnússonar við að láta þetta gerast,“  segir  Hrafn um Skákmótið á Reykhólum.
"Ég hef bara verið verkfæri í höndum Hlyns Þórs Magnússonar við að láta þetta gerast,“ segir Hrafn um Skákmótið á Reykhólum. Vísir/Ernir
Þetta er bæði skákmót og fagnaðarfundur til að heiðra minningu Birnu Norðdahl, sem var brautryðjandi í þátttöku kvenna í skák,“ segir Hrafn Jökulsson um viðburð á Reykhólum sem hefst klukkan 14 í dag. 



Skákmótið er haldið í íþróttahúsinu, viðbyggingu við skólann, og Hrafn segir það glæsilegan mótsstað. „Við eigum von á mörgum gestum og heimamönnum, enda allir velkomnir, hvort sem þeir tefla eða ekki. Þetta verður ábyggilega í fyrsta skipti í skáksögunni sem verðlaun í kvennaflokki verða hærri en karla. Það hefur hingað til verið á hinn veginn.“

Hrafn segir kvennalandsliðið mæta í heild sinni, ein úr hópnum, Guðlaug Þorsteinsdóttir, hafi verið þar samtímis Birnu.

„Önnur skákdrottning sem var í landsliðinu með Birnu, Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir, er hér líka. Þær tvær voru í brautryðjendahópnum sem Birna setti á laggirnar og sá til þess að Íslendingar sendu kvennasveit á Ólympíumót í fyrsta skipti 1978, þær tvær tefldu á slíkum mótum 1978 og 80. Svo eru stúlkur í liðinu núna sem voru ekki fæddar þegar ævintýrið í íslenskri kvennaskák byrjaði.“

 Valinkunnir karlkynsmeistarar, eins og Jóhann Hjartarson Íslandsmeistari, Jón L. Árnason, fyrrverandi heimsmeistari sveina, og Hannes Hlífar Stefánsson, sem oftast allra hefur orðið Íslandsmeistari í skák, verða meðal þátttakenda á mótinu, að sögn Hrafns. „Síðan koma skákmenn úr öllum áttum. Þetta er vel skipað minningarmót og ég hlakka mikið til.“

Hrafn segir alla í sveitinni koma að undirbúningnum, nefnir kvenfélagið, grunnskólann og vinnuskólann en það sé Hlynur Þór Magnússon, umsjónarmaður Reykhólavefsins, sem hafi átt frumkvæðið. „Ég hef bara verið verkfæri í höndum hans við að láta þetta gerast.“





Birna var á forsíðu tímaritsins Skákar 1991.
Hrafn kveðst hafa kynnt sér ævi Birnu og feril og orðið sífellt hrifnari.

„Birna var hrífandi og drífandi manneskja, bóndakona og handavinnukona sem bjó í Bakkakoti, í grennd við Rauðhóla ofan við Reykjavík. Hún tefldi á skákmóti árið 1940, 21 árs,  en þá hafði kona ekki sést á skákmóti á Íslandi áður. Svo tefldi hún ekki á móti fyrr en vakning varð í kvennaskák á Íslandi um miðjan 8. áratuginn, og loks var byrjað að brjóta niður þann karlamúr sem hefur umlukið skákina alltof mikið.

 Birna safnaði upp á eigin spýtur farareyri fyrir kvennasveitina alla leið til Argentínu árið 1978 því það var sett sem skilyrði fyrir þátttöku að konurnar söfnuðu fyrir ferðinni sjálfar.

Hún dvaldi á Reykhólum síðasta áratug ævinnar, Þar bjó hún til Birnulund, hlóð skjólvegg, smíðaði bekki og gróðursetti plöntur. Nú verður sá lundur endurbættur og steinstétt í honum gerð að taflborði.

Dóttir Birnu, Indíana Ólafsdóttir, býr á Reykhólum og hefur haldið uppi merki móður sinnar með því að kenna krökkum í skólanum skák.“ 



Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 20. ágúst 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×