Lífið

Hér ætla Kim Kardashian og Kanye West að gifta sig

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian og rapparinn Kanye West ætla að gifta sig í París í Frakklandi í sumar.

Þau láta gefa sig saman í kastala sem kallast á frummálinu Chateau Louis XIV sem er tuttugu mínútur vestur af Parísarborg.

Lúxus einkennir kastalann eins og sést á meðfylgjandi myndum enda dugar ekkert slor fyrir parið sem ætlaði upprunalega að gifta sig í Versölum en fengu ekki leyfi til þess.

Ástfangin.Vísir/Getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×