Innlent

Heppnin með Spánverja á Bíldshöfða: „Þetta var bara hans dagur“

Ásgeir Erlendsson skrifar
Það þykir ganga kraftaverki næst að erlendir ferðamenn skyldu ekki slasast alvarlega þegar öflug gassprenging varð við metandælu bensínstöðvar við Bíldshöfða. Ferðamennirnir reyndu að dæla Metani á própan-gaskút en slíkt hefur ekki gerst áður að sögn forstjóra N1. Húsbíll þeirra og dælan eru gjörónýt.

Slökkvilið, lögregla og sjúkralið voru kölluð að bensínstöð N1 við Bíldshöfða á öðrum tímanum í gær þegar tilkynnt var um öfluga gassprengingu við metandælu stöðvarinnar. Í fyrstu var óttast um metanleka í kjölfar sprengingarinnar og var götum í kringum bensínstöðina lokað.

„Erlendur ferðamaður reynir að dæla metangasi á gaskút sem á að vera própangas í. Kúturinn springur og bifreiðin í rauninni með,“ segri Eggert Þór Kristófersson, forstjóri N1.

Brak frá kútnum dreyfðist í allar áttir og með ólíkindum að ferðamaðurinn sem stóð við kútinn skyldi sleppa nær ómeiddur. Ferðamönnunum var skiljanlega brugðið en þeir unnu að því að bjarga verðmætum úr húsbílnum áður en hann var fluttur af vettvangi.

„Þetta hefur verið mikið sjokk fyrir þau því að þetta hefði getað farið mjög illa. Bara heppin að hafa lifað,“ segir Þórir Steinarsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

„Sem betur fer. Það er bara hans dagur í dag.“

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri N1, segir að þrýstingurinn á metandælunni sé tuttugufalt meiri en á dælu sem fyllir á própangaskúta. Þar að auki sé bannað að dæla sjálfur á slíka kúta en atvik sem þetta hefur ekki komið upp áður hér á landi.

„Vanalega kemur fólk inn og kaupir nýjan kút. Þetta er greinilega eitthvað sem við þurfum að fylgjast með útaf aukningu ferðamanna.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×