Enski boltinn

Heppni að beinið brotnaði ekki á ný

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Birkir Benediktsson.
Birkir Benediktsson. Vísir/Anton
Þumalputti Birkis Benediktssonar ætlar að vera til mikilla vandræða á þessu tímabili en þessi efnilega skytta er enn að glíma við eftirmála þess að hafa brotið þumalputta vinstri í nóvember.

Birkir átti að vera löngu kominn til baka en í ljós kom að beinið var ekki fullgróið þegar hann fór aftur stað. Ívar Benediktsson, blaðamaður Morgunblaðsins, ræðir stöðu Birkis við Einar Andra Einarsson, þjálfarar Aftureldingar í Morgunblaðinu í dag.

Það er ljóst að Birkir leikur ekki með Aftureldingu næstu sex vikurnar og svo gæti farið að hann verði ekkert meira með á tímabilinu.

Birkir meiddist á þumalputtanum í leik á móti Selfossi 10. nóvember síðastliðinn. Hann brotnaði, fingurinn fór úr lið og liðband slitnaði. Hann þurfti að fara í aðgerð.

Talið var að hann yrði frá keppni fram í janúar. Niðurstaða úr röntgenmyndatöku í janúar gaf til kynna að brotið væri gróið og að Birkir mætti byrja að æfa upp úr miðjum janúar.

Birkir var hinsvegar aldrei verkjalaus og skánaði ekkert. Hann síðan í sneiðmyndatöku í gær og þar kom í ljós að beinið sem brotnaði var ekki fullgróið. Næsta skoðun er eftir sex vikur.

„Það er hreinlega heppni að beinið hafi ekki brotnað á nýjan leik. Beinið er veikt ennþá. Þar af leiðandi hefur Birki enn verki í fingrinum,“ sagði Einari Andri í viðtali við Morgunblaðið.

„Fyrst og fremst er þetta enn meira áfall fyrir Birki sjálfan sem var að mínu mati besti leikmaður Aftureldingarliðsins fyrstu tíu umferð deildarkeppninnar með sex mörk að meðaltali í leik auk þess að vera frábær í vörninni. Birkir var á þessum tíma að taka stórstígum framförum. Þetta er mjög svekkjandi,“ sagði Einar Andri ennfremur í viðtalinu við Ívar.

Afturelding tapaði Selfossleiknum með sjö mörkum og svo með 18 mörkum á móti Haukum í fyrsta leiknum án Birkis. Mosfellingar höfðu fram að leiknum sem Birkir meiddist í unnið átta af fyrstu níu leikjum sínum.

Frá og og með leiknum sem Birkir meiddist í hefur Aftureldingarliðið aðeins unnið 3 af 10 leikjum sínum í Olís-deildinni.



Frammistaða Birkis Benediktssonar fram að leiknum afdrifaríka á Selfossi:

Tap á móti Selfossi 8. september (25-32) - 2 mörk

Sigur á Haukum 15. september (31-30) - 7 mörk

Sigur á Fram 19. september (32-25) - 5 mörk

Sigur á Akureyri 22. september (30-24) - 4 mörk

Sigur á FH 28. september (27-26) - 8 mörk

Sigur á Stjörnunni 8. október (27-22) - 7 mörk

Sigur á Gróttu 13. október (27-26) - 1 mark

Sigur á ÍBV 20. október (27-26) - 13 mörk

Sigur á Val 27. október (25-23) - 0 mörk

Tap á móti Selfossi 10. nóvember (25-32) - 5 mörk




Fleiri fréttir

Sjá meira


×