Enski boltinn

Henti sér í tattoo strax eftir sigurinn á Liverpool

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jon High er grjótharður.
Jon High er grjótharður.
West Ham vann ótrúlegan sigur á Liverpool, 3-0, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær en leikurinn fór fram á Anfield, heimavelli Liverpool.

Einn aðdáandi West Ham hafði lofað því að hann skildi fá sér húðflúr á höndina tengt sigrinum ef liðið myndi vinna á Anfield en það hafði ekki gert í 52 ára í gær.

Aðeins tveimur tímum eftir sigurinn West Ham í gær tístaði Jon High mynd af húðflúrinu sem hann hafði fengið sér. Daginn áður hafði hann einmitt lofað því á Twitter. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×