Golf

Henrik Stenson tekur forystuna fyrir lokahringinn á Bay Hill

Henrik Stenson var í stuði í gær.
Henrik Stenson var í stuði í gær. vísir/Getty
Svíinn Henrik Stenson leiðir fyrir lokahringinn á Arnold Palmer Invitational sem fram fer á Bay Hill vellinum í Flórída en eftir þrjá hringi er hann á 16 höggum undir pari.

Stenson á tvö högg á Morgan Hoffman sem kemur í öðru sæti á 14 höggum undir pari en fjórir kylfingar deila þriðja sætinu á 13 höggum undir, meðal annars sigurvegarinn frá því í fyrra, Matt Every.

Rory McIlroy var í baráttu efstu manna framan af þriðja hring í gær en þrír skollar í röð á seinni níu holunum gerðu nánast út um möguleika hans til þess að sigra mótið. Hann situr jafn í 12. sæti á níu höggum undir pari.

Tilþrif gærdagsins  átti Bandaríkjamaðurinn Daniel Berger en þrátt fyrir að sigla lygnan sjó á sjö höggum undir pari gerði hann sér lítið fyrir og fékk Albatross á sjöttu holu. Það gerði hann með því að setja niður 220 metra högg en þetta var í fyrsta sinn í sögu mótsins sem Albatross sést.

Lokahringuinn í kvöld ætti að verða spennandi en útsending frá honum hefst klukkan 16:30 á Golfstöðinni.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×