Lífið

Hélt partí fyrir synina

Britney Spears hélt afmælisveislu fyrir syni sína um helgina. Þemað var hjólabretti og voru synirnir, Preston og Jayden, himinlifandi með teitið.

Synirnir eru miklir hjólabrettaaðdáendur og voru því glaðir með þemað. Báðir hafa þeir verið í hjólabrettatímum.

Britney setti mynd á Instagram- síðuna sína og skrifaði undir: „Til hamingju með afmælið litlu strákarnir mínir. Þeir vaxa alltof fljótt!!!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×