Lífið

Hélt framhjá með stílistanum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Tónlistarkonan Ciara fór frá rapparanum Future eftir að hún komst að því að hann væri að halda framhjá með stílistanum sínum, Tyrina Lee. Þetta segir heimildarmaður tímaritsins Us Weekly.

Us Weekly sagði frá því í síðustu viku að parið væri hætt saman, aðeins þremur mánuðum eftir að þau eignuðust soninn, Future Zahir Wilburn.

„Hún komst að framhjáhaldinu í gegnum ýmsa síðustu vikur. Það voru skýr sönnunargögn til staðar og hún spurði Future út í þetta. Þetta var greinilega ekki einnar nætur gaman,“ segir heimildarmaður tímaritsins. Bætir hann við að Ciara sé í öngum sínum yfir þessum svikum.

Ciara og Future trúlofuðu sig í október á síðasta ári en sonur þeirra fæddist í maí á þessu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×