Handbolti

Hélt að símtalið frá Alfreð væri aprílgabb

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Erlend Mamelund fagnar marki í leik með Kiel.
Erlend Mamelund fagnar marki í leik með Kiel. Vísir/Getty
Handboltamaðurinn Erlend Mamelund var kominn aftur heim til Noregs og byrjaður að vinna sem endurskoðandi samhliða því að spila með uppeldisfélaginu Haslum.

Mamelund hafði átt fínan feril og spilað með sterkum liðum í Þýskalandi, Frakklandi og Danmörku. En hann var sáttur við að vera kominn heim og var þar að auki hættur að spila með norska landsliðinu.

„Ég var hættur að spila handbolta í hæsta gæðaflokki og afþakkaði öll tilboð sem komu frá erlendum félögum,“ sagði Mamelund í viðtali við VG í vikunni. Hann er nú staddur með norska landsliðinu í Herning í Danmörku þar sem Noregur mun berjast um að komast á Ólympíuleikana í Ríó í sumar.

Sjá einnig: Aron Pálmarsson var munurinn á liðunum

„Það þurfti eitthvað nýtt til að koma mér í burtu að heiman. Ég grínaðist með að það eina sem gæti fengið mig til að fara frá Noregi á ný væri tilboð frá handboltarisanum Kiel. En ég taldi það afar ólíklegt.“

Svo í júlí í fyrra breyttust öll plön hjá Mamelund. Hann fékk SMS frá styrktarþjálfarnaum Ole Martin Viken sem starfar hjá norska landsliðinu. Viken var áður hjá Kiel og sagði Mamelund að búast við símtali frá Alfreð Gíslasyni síðar um daginn.

„Fyndið. Er þetta aprílgabb?“ var svar Mamelund. „Ég tók þessu ekki alvarlega. Ég var að sinna einhverjum verkum úti og dagurinn leið. Svo fékk ég símtalið.“

Alfreð hafði vissulega hringt í hann og vildi vita hvort að Mamelund myndi íhuga að koma til Þýskalands.

Sjá einnig: Mamelund samdi við Kiel

„Ég sagði honum að ég væri nýkvæntur og að þetta kæmi skyndilega upp. Það skildi hann vel og hann ætlaði að hringja aftur næsta dag. Ég ræddi þetta allt við eiginkonuna og þó svo að það var alls ekki í plönum okkar að búa í sínu hvoru landinu þá sýndi hún þessu mikinn skilning og við fundum lausn á þessu.“

Mamelund skrifaði undir eins árs samning við Kiel og hefur átt velgengni að fagna þar. Hann komst svo aftur í norska landsliðið sem átti frábært Evrópumót í Póllandi og hafnaði í fjórða sæti. Og nú er hann stutt frá því að láta draum sinn rætast um að keppa á Ólympíuleikum.

„Ég hef upplifað margt skemmtilegt á þessu ári. Bæði í Kiel og á EM, sem var hápunktur ferilsins.“


Tengdar fréttir

Ísland er sigurstranglegra liðið

Hinn leikreyndi Erlend Mamelund var yfirvegaður og með báða fætur á jörðinni er Fréttablaðið hitti hann á blaðamannafundi norska landsliðsins í gær.

Mamelund samdi við Kiel

Kiel beið ekki boðanna með að styrkja lið sitt eftir að Filip Jicha fór til Barcelona.

Kiel á leikmann í öllum undanúrslitaliðunum

Kiel er eina félagið sem getur státað sig af því að eiga leikmann í öllum liðum undanúrslitaliðanna á EM. Vísir kíkir á tölfræðina fyrir úrslitahelgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×