Lífið

Hélt að hann væri að taka sjálfu með GOT stjörnu en hún leiðrétti hann á Twitter

Stefán Árni Pálsson skrifar
Konan lengst til vinstri er ekki Maisie Williams.
Konan lengst til vinstri er ekki Maisie Williams. vísir/getty
Leikkonan Maisie Williams, sem fer með hlutverk Arya Stark, í þáttunum Game of Thrones, svaraði eldheitum aðdáenda nokkuð skemmtilega á Twitter.

Forsaga málsins er sú að Adam C, setti inn mynd af sér og konu sem hann hélt að væri Maisie Williams.

Svo var hreinlega ekki og leikkonan svaraði tístinu á þá leið að þessi kona væri einfaldlega ekki hún.

Adam C setti myndina inn í mars og hefur ekki enn leiðrétt misskilninginn. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×