Innlent

Helsti vandi Íslands ósamkeppnishæf lífskjör

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá blaðamannafundinum í morgun.
Frá blaðamannafundinum í morgun. Vísir/Stefán
Helsta vandamál Íslands, samkvæmt Viðreisn, er að lífskjör hér á landi eru ekki samkeppnishæf við það sem býðst í nágrannalöndum okkar. Það sé ástæða þess að brottfluttir eru um sex þúsund fleiri en aðfluttir frá 2010. Flokkurinn vill snúa þessari þróun við.

Viðreisn hélt blaðamannafund í dag þar sem farið var yfir helstu stefnumál flokksins. Samkvæmt tilkynningu fóru frambjóðendur Viðreisnar yfir tillögur um umbætur á komandi kjörtímabili.

Þá ætlar flokkurinn að hækka útgjöld ríkissjóðs „til að mæta bráðum vanda í heilbrigðis-, skóla-, velferðar- og samgöngukerfum,“ segir í tilkynningunni. Frambjóðendurnir sýndu einni hvernig útgjaldaaukningunni verður mætt.

Mynd/Viðreisn
Meðal annars vill flokkurinn spara milljarða króna með hagræðingu í rekstri ríkissjóðs. Það verði gert með því að draga úr skattundskotum með einföldun skattkerfis og aukinni áherslu á skatteftirlit. Með aukinni áherslu á útboð opinberra innkaupa, betri nýtingu og stýringu á fasteignum ríkisins og með fjárfestingu í netvæðingu opinberrar stjórnsýslu.

Viðreisn vill standa fyrir umbótum á heilbrigðiskerfinu með því auka útgjöld um 39 milljarða króna á ári og ljúka byggingu Þjóðarsjúkrahúss við Hringbraut árið 2022. Einnig eigi að auka útgjöld til háskóla um átta milljarða og ráðast í tæknivæðingu grunnskóla.

Þá vill Viðreisn lækka vexti. Í tilkynningunni segir að miðað við að vextir lækki um þrjú prósent lækki vaxtakostnaður fjölskyldu með 20 milljóna króna húsnæðislán um 50 þúsund krónur á mánuði.

„Kostnaðurinn af því að vera Íslendingur er of hár. Ein meginorsök þess eru háir vextir sem eru afleiðing af sveiflukenndu hagkerfi og óstöðugum gjaldmiðli. Íbúðakaupandi á Íslandi má væntast þess að greiða tvisvar - þrisvar sinnum fyrir eign sína í formi vaxta, á meðan íbúðakaupandi á Norðurlöndum greiðir einu sinni fyrir sína.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×