Bílar

Helmingur sölu Toyota bíla í Japan tvinnbílar

Finnur Thorlacius skrifar
Frá samsetningarverksmiðju Toyota í Japan.
Frá samsetningarverksmiðju Toyota í Japan.
Á næsta ári stefnir Toyota að því að um helmingur þeirra bíla sem fyrirtækið selur í Japan verði tvinnbílar, þ.e. Hybrid eða Plug-In-Hybrid bílar.

Toyota gerir ráð fyrir að selja 760.000 slíka bíla í heimalandinu á næsta ári en þeir voru 684.000 í fyrra. Í heildina stefnir Toyota að því að framleiða 1,32 milljón tvinnbíla á næsta ári, ekki alla þeirra í Japan þó.  Það yrði 30% meira en Toyota framleiddi í fyrra.

Helsta ástæða fyrir þessari áherslu Toyota eru enn strangari reglur yfirvalda í Japan hvað skatta varðar á bíla vegna mengunar þeirra.  Í dag er um helmingur framleiðslu Toyota undanþegið þessum skatti en Toyota ætlar að um 80% framleiðslu þeirra á næsta ári komist hjá þeim. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×