Helmingur smitaðra þegar látið lífið Svavar Hávarðsson skrifar 21. maí 2013 10:00 Ferðalöngum er ráðlagt að gæta að hreinlæti, einkum handþvotti. Fréttablaðið/Hari
Ný gerð skæðrar bráðalungnabólgu hefur skotið upp kollinum og hefur þegar lagt 20 manns að velli, eða helming þeirra sem hafa greinst með sjúkdóminn síðan í mars 2012. Veikin hefur að mestu verið bundin við Mið-Austurlönd, einkum Sádi-Arabíu. Sjúkdómurinn hefur hins vegar greinst á nokkrum stöðum utan Arabíuskaga, meðal annars Englandi og í Frakklandi. Að mati Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) er „um óvenjulegan og óvæntan atburð að ræða sem full ástæða er að fylgjast náið með,“ eins og segir í tilkynningu frá sóttvarnalækni. Þar kemur einnig fram að hvorki er til bóluefni né lyfjameðferð við sýkingunni. Bráðalungnabólgan er af völdum kórónaveiru sem er skyld HABL (heilkenni alvarlegrar bráðrar lungnabólgu) sem frá 2003 breiddist út í Kína, Hong Kong, Hanoí í Víetnam og síðar í öðrum löndum Asíu og víðar um heim. Þegar faraldurinn var liðinn hjá höfðu 8.445 manns sýkst og 812 látist. Sýnt hefur verið fram á að þetta nýja afbrigði getur smitast á milli manna, en treglega þó. WHO og Sóttvarnastofnun ESB mæla hvorki með sérstökum viðbúnaði vegna ferðalaga til og frá Mið-Austurlöndum né heldur takmörkunum á ferðalögum og viðskiptum.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira