Heilsa

Helltu upp á eðalkaffibolla

sigga dögg skrifar
Nýmalaðar baunir gefa besta bollann.
Nýmalaðar baunir gefa besta bollann. Vísir/Getty
Þessar leiðbeiningar tryggja hámarksgæði á uppáhelltu kaffi – kjörin leið til að sigla inn í helgina.



- Kauptu baunir frekar en malað kaffi.



- Malaðu kaffibaunirnar rétt fyrir uppáhellingu.



- Ef þú átt ekki kvörn, farðu á uppáhaldskaffibrennsluna þína og fáðu kaffiþjóninn til að mala kaffibaunirnar fyrir þig. Þannig tryggir þú að kaffið sé sem ferskast.



- Malað kaffi geymast best í loftþéttri krukku og er endingartíminn um fimm til sjö dagar.



- Taktu fram í hvernig uppáhellingu kaffið fer í, það skiptir máli upp á grófleika kaffisins. Ef þú ert með pressukönnu er gott að mala kaffið í um 10 til 12 sekúndur. Ef þú hellir upp á í kaffivél er gott að mala baunirnar í 15 til 20 sekúndur.



- Það er gott að miða við að hafa kúffulla matskeið af kaffi á móti tæpum desilítra af vatni. Það er betra að hella upp á sterkt kaffi sem svo er þynnt út með heitu vatni á eftir. Of lítið kaffi á móti vatni í uppáhellingu getur gert kaffið beiskt.



- Hitastig vatnsins á að vera um 96 gráður, sem er um 45 sekúndum áður en hraðsuðuketillinn pípir.



- Helltu nýuppáhelltu kaffinu í hitaðan hitabrúsa. Gott er að hita brúsann með soðnu vatni áður en kaffinu er hellt í hann.



- Einu sinni í mánuði er gott að láta edikslausn (vatn á móti ediki) fara í gegnum vélina til þess að halda henni hreinni. Helltu upp á tvisvar sinnum bara með vatni eftir að edikið hefur farið í gegnum vélina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×