Bíó og sjónvarp

Hellingur af Íslandi í nýjustu The Fate of the Furious-stiklunni

Birgir Olgeirsson skrifar
Charlize Theron í The Fate of the Furious.
Charlize Theron í The Fate of the Furious.
Hér er komin ný stikla úr myndinni The Fate of the Furious sem frumsýnd verður 12. apríl næstkomandi. Um er að ræða áttundu myndina í Fast and the Furious-seríunni sem meðal annars var tekin upp hér á landi í fyrra.

Söguþráður þessarar myndar hefst þegar Dom, leikinn af Vin Diesel, og Letty, leikin af Michelle Rodriguez, eru í brúðkaupsferð sinni og restin af teyminu þeirra lifir því sem gæti kallast venjulegt líf.

Dularfull kona, leikin af Charlize Theron, verður hins vegar á vegi Doms og tælir hann aftur inn á glæpabrautina sem verður til þess að hann svíkur þá sem standa honum næst.

Í þessari stiklu sést mun meira af persónu Charlize Theron en áður en í stiklunni má einnig sjá Íslandi bregða nokkrum sinnum fyrir.


Tengdar fréttir

Bílar og byssuhvellir á Mývatni - Myndband

Upptökur Fast 8 fara fram í Mývatnssveit þessa dagana en einnig verður tekið upp á Akranesi. Nýtt myndband hefur skotið upp kollinum á samskiptamiðlinum Instagram en þar má sjá svakalegan bílaflota keyra á Mývatni og má heyra byssuhvelli í myndbandinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×