Formúla 1

Helgin verður tilfinningaþrungin fyrir Button

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Jenson Button verður saknað úr Formúlu 1.
Jenson Button verður saknað úr Formúlu 1. Vísir/Getty
Jenson Button segist búast við tilfinningaþurnginni helgi í Abú Dabí. Keppni helgarinnar mun vera hans síðasta í Formúlu 1 að minnsta kosti í bili.

Button hefur þó lokið 17 tímabilum í Formúlu 1. Hann er 36 ára og hefur því verið í Formúlu 1 næstum helming ævi sinnar. Hann varð heimsmeistari með Brawn liðinu árið 2009.

Button hefur ekki vilja nota frasan um að hann ætli að setja hjálminn á hilluna. Enda er samningur í gildi á milli hans og McLaren liðsins sem hann ekur fyrir, að ef á þarf að halda þá komi hann og keppi fyrir liðið. Slíkt veðrur þó að teljast ólíklegt í náinni framtíð enda Fernando Alonso og Stoffel Vandoorne á samning sem ökumenn liðsins á næsta ári.

Þar af leiðir að helgin verður nokkurs konar kveðjustund fyrir Button.

„Ég hlakka mikið til helgarinnar og hef verið óvenju spenntur fyrir keppnishelgum, núna nokkrar síðustu keppnir,“ sagði Button.

„Þetta verða einstök kaflaskil í mínu lífi og fjölskyldu minnar. Einhverjir vinir verða þarna um helgina ásamt fjölskyldumeðlimum sem gleður mig mikið,“ bætti Button við.

„Þetta verður tilfinningaþrungin helgi og ég vona að með stuðningi áðdáenda, liðsins og minna nánustu þá getum við gefið allt í aksturinn og hámarkað árangurinn og notið helgarinnar,“ hélt Button áfram.

Lokakeppni tímabilsins fer fram um komandi helgi. Bein útsending frá tímatökunni hefst klukkan 12:50 á laugardag á Stöð 2 Sport 3. Bein útsending frá keppninni hefst svo klukkan 12:30 á sunnudag á Stöð 2 Sport.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir feril Jenson Button í Formúlu 1. 


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Baslið í Brasilíu

Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark í maraþon keppni í Brasilíu. Kappaksturinn stóð yfir í rúmar þrjár klukkustundir. Miklar rigningar töfðu keppnina talsvert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×