Lífið

Helgi Seljan er Hurðaskellir

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tímaritið Séð og Heyrt bjó til þrettán nýja jólasveina, eins og sést í nýjasta hefti blaðsins. Er þetta í fyrsta sinn sem tímaritið tekur upp á þessu en nýju jólasveinarnir eru ansi skrautlegir.

Helgi Seljan er til dæmis Hurðaskellir eftir árekstur við Pál Magnússon á Rúv. Þá er Saga Garðarsdóttir Eddusleikir eftir uppákomu á Edduverðlaununum með Steinda Jr. Svo er Sigmundur Davíð Skuldafellir og Ómar Ragnarsson Gálgagaur svo fátt eitt sé nefnt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×