Skoðun

Helgi með smá kvenfyrirlitningu

Sveinn Arnarsson skrifar
Menningarnótt er eitt af þeim fyrirbærum sem fær mig, manninn sem býr „úti á landi“ til að elska Reykjavík.

Þessi frjóa hugsun með öllu þessu hæfileikaríka fólk sem býr í borginni og safnast saman í miðbænum til að skapa og búa til eitthvað nýtt. Allt þetta líf sem verður til í miðbænum í höfuðborginni okkar er á heimsmælikvarða. Við búum yfir urmul af skapandi fólki.

Ég vona að sem flestir kíki í miðbæinn og njóti menningarinnar og samvista við annað fólk. Um að gera að gera sér glaðan dag. Þessi viðburður hefur einnig breyst mikið undanfarið. Það er ekki langt síðan hann var ekkert nema bakpokafyllerí unglinga. Nú er öldin önnur og hátíðin í ár sú allra veglegasta.

Síðan munum við um helgina fá til okkar sannkallaða stórstjörnu til að troða upp í Kórnum (knattspyrnuhús á stað þar sem vorar í júní sökum hæðar yfir sjávarmáli). Sú menning heillar mig almennt aðeins minna, þessi svokallaða poppmenning. Og ég skal segja ykkur af hverju.

Við lifum í samfélagi þar sem við þurfum á hverjum einasta degi að berjast fyrir jöfnum hag kynjanna. Jafnréttið er ekki komið þó sumir vilji halda því fram. Poppmenningin gerir lítið úr konum. Þessi menningarheimur er uppfullur af merkjum um að konur séu ekki jafnháar okkur köllunum.

Justin er víst á leiðinni til landsins. Það er spurning hvort hann taki þá lagið „Sexy Back“, sem hann gerði vinsælt hérna fyrir tæpum tíu árum. Textinn er um margt áhugaverður:

Skítuga kvendi, sérðu hlekkina, Elskan ég er þræll þinn. Ég leyfi þér að slá mig með svipu ef ég haga mér ekki. Það er bara þannig að enginn annar lætur mér líða þannig. Komdu hérna stelpa, komdu baka til, VIP, ég býð upp á drykki, leyfðu mér að sjá hvernig þú twerkar, sjáðu þessar mjaðmir, þú færð mig til að brosa, haltu áfram barn, þú ert sexí.






Skoðun

Sjá meira


×