Innlent

Helgi Hrafn hélt þrumuræðu um mál Eze Okafor

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Helgi Hrafn helgaði eina ræðu sína á Alþingi í dag Eze Okafor.
Helgi Hrafn helgaði eina ræðu sína á Alþingi í dag Eze Okafor. Vísir
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, tjáði sig um málefni hælisleitandans Eze Okafor á þingi í dag og varð Píratanum heitt í hamsi. Hann hélt þrumuræðu yfir þingsal um málefnið og ljóst er að honum misbýður það hvernig yfirvöld hafa komið fram við Eze.

„Mig langar aðeins að fjalla um það sem aðrir háttvirtir þingmenn hafa nefnt í sambandi við Eze Okafor sem var nauðugur sendur úr landi. Gegn sínum vilja. Var tekinn með valdi,“ sagði Helgi Hrafn. Eze var fluttur úr landi í síðustu viku til Svíþjóðar. Þaðan verður hann fluttur til Nígeríu.

Frá mótmælafundinum í innanríkisráðuneytinu í gær.Vísir/Anton
Eze hefur búið á Íslandi í fjögur ár og hafði kærunefnd útlendingamála úrskurðað að ekki væri lengur hægt að úrskurða í máli hans á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Þrátt fyrir þetta var honum vísað úr landi á grundvelli hennar að því er fram hefur komið í máli samtakanna No Borders sem hafa gagnrýnt brottvísunina harðlega. Boðað var til mótmæla í innanríkisráðuneytinu í gær vegna þess að Ólöf Nordal innanríkisráðherra neitaði að funda með hópnum þar sem hún sagðist ekki getað tjáð sig um einstök mál. 

Sjá einnig: Boða til mótmæla vegna þess að Ólöf Nordal vill ekki ræða mál Eze

Stjórnvöld hafa heimild til að líta til sanngirnissjónarmiða 

„Stundum þá nefni ég það eins og margir að það er ekki alltaf við Útlendingastofnun að sakast. Stundum eru lögin einfaldlega ómanneskjuleg, á köflum eru þau það. En það hrannast upp dæmin með tímanum þar sem maður skilur ekki, jafnvel út frá gildandi lögum, hvernig í ósköpunum mönnum dettur í hug að vinna svona. Það er við Útlendingastofnun að sakast, það er við stjórnmálamenn að sakast varðandi hvernig farið er í málum eins og máli Eze,“ sagði Helgi. 

Helgi sagðist skilja að erfitt  væri fyrir stofnanir og stjórnmálamenn að fjalla um einstaka mál. 

„En þetta eru einstaka mál, þetta eru einstaklingar. Við berum ábyrgð á þeim,“ sagði Helgi og sló í pontu. Hann benti á að víða væru heimildir í lögum sem gerðu stofnunum og stjórnvöldum kleift að vísa til sanngirnissjónarmiða þegar teknar væru ákvarðanir um hælisveitingar og annað. Dyflinnarreglugerðin væri heimild en ekki skylda eins og íslensk stjórnvöld virðast hafa kosið að túlka hana. 

„Eze bjó hér í fjögur ár. Hann á vini hérna og hann á hér líf. Hvers vegna í ósköpunum er hann ekki hér á þessu landi? Það er kominn tími til að við tökum okkur saman í andlitinu og hættum að koma fram við þetta fólk eins og dýr.“


Tengdar fréttir

Eze Okafor: "Ég var niðurlægður af lögreglunni“

Samtökin Ekki fleiri brottvísanir birtu í kvöld viðtal við Eze Okafor sem tekið var við hann eftir komuna til Svíþjóðar. Hann segir lögregluna hafa beitt sig líkamlegu og andlegu ofbeldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×