Innlent

Helgarveðrið í Reykjavík: Þurrt og sólríkt með köflum

Atli Ísleifsson skrifar
Hitinn verður á bilinu 10 til 15 stig.
Hitinn verður á bilinu 10 til 15 stig. Vísir/ernir
Skiptast munu á norðlægar og austlægar áttir á höfuðborgarsvæðinu um verslunarmannahelgina.

Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði þurrt og sólríkt með köflum og mega því þeir sem ákveða að halda kyrru fyrir í höfuðborginni búast við hinu skaplegasta veðri.

Veðurfræðingur á Veðurstofunni sem Vísir ræddi við í morgun segir að hitinn verði á bilinu 10 til 15 stig um helgina.


Tengdar fréttir

Hvað ætlar þú að gera um helgina?

Mesta ferðahelgi ársins er að ganga í garð og margir verða á faraldsfæti enda er mikið af útihátíðum víða um land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×