Matur

Helgarsúpan - Gegn flensu-súpa fræga

Marín Manda skrifar
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir

Systurnar Jóhanna og Guðrún Kristjánsdætur reka Systrasamlagið á Seltjarnarnesinu og eru báðar ástríðufullar áhugamanneskjur um heilsumál. Samanlagt telur reynsla þeirra af heilsubransanum um 40 ár.

Í sjö mánaða gömlu heilsuhofi sínu bjóða þær upp á allskyns góðgæti en það nýjasta eru súpur úr lífrænu hráefni. Hér bjóða þær upp á uppskrift að shiitake-sveppasúpu með goji-berjum. Það dugir ekki minna en einn góður pottur, svo má alltaf margfalda

uppskriftina.

Uppskrift

1 rauðlaukur

1 grænn chili

4 hvítlauksrif

5 cm engiferrót, smátt skorin

2 msk. ólfuolía

2 meðalstórar sætkartöflur

1 karfa shiitake-sveppir

2 handfyllir goji-ber

2 l grænmetissoð

Salt og pipar

Góða súpan gegn flensu.

Aðferð

Setjið laukinn, chili, hvítlauk og engifer í pott með ólífuolíu og hitið í u.þ.b. fimm mínútur.

Blandið goji, sætum kartöflum og sveppum á pönnuna. Hrærið vel. Bætið við grænmetissoðinu. Sjóðið í 10 til 15 mínútur. Piprið, saltið og njótið!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×