Lífið

Helga Sól var fyrsta manneskjan sem Palli kom út úr skápnum fyrir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kvikmyndin Hjartasteinn, eftir Guðmund Arnar Guðmundsson, hefur sópað til sín bæði íslenskum og alþjóðlegum verðlaunum síðustu vikur og mánuði.

Alþjóðlegu verðlaunin eru nú orðin 24 talsins og nýlega bættust við þau 9 EDDU verðlaun en myndin var kosin kvikmynd ársins á síðustu EDDU hátíð.

Hjartasteinn fjallar um sterka vináttu tveggja drengja sem eru að taka sín fyrstu skref inn í unglingsárin og uppgötva ástina.

Myndin hefur eflaust vakið upp margar æskuminningar hjá þeim 20.000 Íslendingum sem hafa séð hana til þessa en af því tilefni hafa framleiðendur myndarinnar fengið til sín ýmsa þjóðþekkta einstaklinga til að rifja upp sínar æskuminningar.

Að þessu sinni er komið að popparanum Páli Óskari Hjálmtýssyni sem segir áhorfendum sögu frá árinu 1984. Hann setti bekkinn á hliðina þegar hann ákvað að sitja við hliðin á vinkonu sinni í skólastofunni. Vinkonan heitir Helga Sól og var fyrsta manneskjan sem Palli sagði að hann væri hommi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×