Körfubolti

Helena viðurkennir að hafa reynt að tækla Grindvíking í körfuboltaleik | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lórenz Óli Ólasson, formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur, er ekki sáttur við það að atvik sem átti sér stað í leik Grindavíkur og Hauka, verði ekki tekið fyrir af dómaranefnd KKÍ.

Lórenz Óli Ólasson ræðir málið við karfan.is í dag en Grindvíkingar sendu myndband af atvikinu til nefndarinnar þar sem Helena Sverrisdóttir, leikmaður Hauka sést bregða fæti fyrir Whitney Frazier, leikmann Grindavíkur.

„Lórenz segir dómaranefndina hafa svarað því að "það sé ekki hægt að taka afstöðu til þess hvort það hafi þurft að dæma eitthvað á þetta." Dómaranefnd hafi hins vegar sett línuna með því að dæma Ingunni Emblu Kristínardóttur, sem þá lék með Keflavík, í tveggja leikja bann fyrir samskonar brot, að mati formannsins," segir í fréttinni á karfan.is.

Það er hægt að sjá þetta atvik í spilaranum hér fyrir ofan. Karfan.is hafði samband við dómaranefnd KKÍ og bar þessi ummæli undir fulltrúa hennar en þar fengust aðeins þau svör að málið hafi verið tekið til efnislegrar meðferðar hjá nefndinni og niðurstaðan sé þessi.

Hörður Tulinius á karfan.is bar atvikið einnig undir Helenu sjálfa. Hún vék sér ekki undan þegar leitað var svara hjá henni.

Helena segir hafa verið nýbúin að fá olnboga frá Frazier og þegar þarna kemur við sögu lenda þær í samstuði og Helena lendir á gólfinu.

„Þegar ég er síðan að fara að standa upp og Whitney ætlar að hlaupa yfir mig fæ ég einhvern leiðinda púka í mig og reyni að "tækla" hana. Algjörlega heimskulegt af minni hálfu en bara í þessa split sekúndu missti ég hausinn," segir Helena en það má lesa meira um málið á karfan.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×