Fótbolti

Helena tekur við liði í Noregi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Ólafsdóttir.
Helena Ólafsdóttir. Vísir/Stefán
Helena Ólafsdóttir hefur verið ráðin þjálfari norska B-deildarfélagsins FK Fortuna sem leikur í Álasundi. Þetta hefur verið staðfest á heimasíðu félagsins.

Helena, sem er 45 ára gömul, gerði tveggja ára samning við Fortuna með möguleika á framlengingu til eins árs. Fortuna hafnaði í fjórða sæti norsku B-deildarinnar í haust.

Helena á langan þjálfaraferil að baki en hún var síðast þjálfari Vals í Pepsi-deild kvenna en hætti um mitt sumar. Hún hóf þjálfaraferilinn hjá Val árið 2002 en hefur einnig þjálfað KR, Selfoss og FH auk þess sem hún var landsliðsþjálfari Íslands árið 2004.

Sem leikmaður varð hún Íslands- og bikarmeistari með bæði KR og ÍA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×