Körfubolti

Helena samdi við lið í Póllandi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. vísir/daníel
Helena Sverrisdóttir, besti leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, er búin að finna sér nýtt lið. Frá þessu er greint á heimasíðu umboðsskrifstofu hennar hennar.

Hún er búin að semja við pólska liðið CCC Polkowice sem kemur frá samnefndum 22.000 manna bæ í austurhluta landsins.

Polkowice hafnaði í öðru efstu deildar Póllands á síðustu leiktíð, en komst ekki í lokaúrslitin.

Þetta er þriðja liðið sem Helena leikur með á atvinnumannaferlinum, en áður var hún á mála hjá Good Angels í Slóvakíu og nú síðast hjá DVTK Miskolc í Ungverjalandi.

Helena skrifaði undir samninginn í dag, en á Twitter-síðu sinni birtir hún mynd af pappírunum og segist vera spennt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×