Körfubolti

Helena með 17 stig í auðveldum sigri Polkowice

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Helena og stöllur hennar eru í 4. sæti pólsku deildarinnar.
Helena og stöllur hennar eru í 4. sæti pólsku deildarinnar. vísir/daníel
Helena Sverrisdóttir skoraði 17 stig þegar CCC Polkowice vann stórsigur, 72-46, á Chemat Basket Konin í pólsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Polkowice hafði mikla yfirburði í leik dagsins. Eftir 1. leikhluta var munurinn orðinn tólf stig, 22-10, og í hálfleik skildi 21 stig liðin að, 40-19.

Polkowice vann að lokum 26 stiga sigur, 72-46, en skotnýting Konin í leiknum var hörmuleg, eða aðeins 26,2%.

Helena skoraði sem áður sagði 17 stig en hún tók einnig sjö fráköst. Helena setti niður sjö af 17 skotum sínum utan af velli í leiknum.

Þetta var 11. sigur Polkowice í vetur en liðið er í 4. sæti deildarinnar með 27 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×