Heldur íslenska menningarhátíð í Frakklandi

Fréttablaðið Menning 13. apríl 2012 09:00
Meðal listamanna Hljómsveitin For a Minor Reflection kemur fram á tvennum tónleikum hátíðarinnar. Auk þeirra stíga þar á stokk hljómsveitirnar Kimono, Lazyblood, Reykjavík!, Kría Brekkan og Snorri Helgason.
Meðal listamanna Hljómsveitin For a Minor Reflection kemur fram á tvennum tónleikum hátíðarinnar. Auk þeirra stíga þar á stokk hljómsveitirnar Kimono, Lazyblood, Reykjavík!, Kría Brekkan og Snorri Helgason.
„Markmiðið er að fólk komi á hátíðina, uppgötvi eitthvað nýtt og kynnist íslenskri menningu og íslenskri list betur," segir Ari Allansson sem stendur fyrir íslensku menningarhátíðinni Air d'Islande í Frakklandi.

Ari hefur verið búsettur í Frakklandi frá árinu 2005 og er giftur franskri konu. Hann fékk hugmyndina árið 2007, fékk þá nokkra Frakka í lið með sér og hélt fyrstu hátíðina í desember 2008. Hátíðin hefur gengið undir nafninu Air d'Islande, sem á íslensku þýðir eitthvað sem kemur frá Íslandi. „Nafnið tengist ekkert Icelandair eins og margir kunna að halda," segir Ari og hlær.

Hátíðin hefur breyst og stækkað mikið frá því að hún var fyrst haldin. „Á fyrstu hátíðinni sýndum við fjórtán íslenskar kvikmyndir og héldum eina tónleika. Núna er tónlistin farin að hafa meira vægi og við erum búin að bæta samtímalist inn í dagskrána," segir Ari. Nú í ár er hátíðin í fyrsta skipti haldin á tveimur stöðum, í París og smábænum Chessy sem er um 50 kílómetra fyrir utan París. Hún er haldin í samstarfi við nokkra aðila. „Við erum þrjú sem berum hitann og þungann af verkefninu: ég, Cedric Delannoy og Charlotte Sohm sem bæði eru frönsk. Íslenska sendiráðið í París hefur svo staðið dyggilega við bakið á okkur," segir Ari, en Iceland Airwaves, Kimi Records og Promote Iceland koma einnig að hátíðinni. „Með þessari hátíð gefst okkur til dæmis færi á að kynna Iceland Airwaves-hátíðina, en við höldum eina tónleika undir þeirra formerkjum og aðra undir formerkjum Kimi Records. Svo erum við líka í samstarfi við Inspired by Iceland-átakið," bætir hann við.

Það er ekki mikill gróði sem kemur af hátíðinni og að sögn Ara snýst hún meira um hugsjón. „Við náum að halda hátíðina og gera það vel. Við borgum tónlistarfólkinu sem kemur, borgum flug út og höldum því uppi meðan það er hér, svo við erum mjög ánægð með það," segir hann.

Hátíðin hófst í Chessy 2. apríl síðastliðinn og stendur til 15. en í París hófst hún 11. apríl og stendur í tíu daga. - trs

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Menning 15. maí 2013 12:00

Dvalið í draumahöll borgarstjóra

Hljóðupptaka af nætursvefni Jóns Gnarr borgarstjóra verður leikin í sífellu allan sólarhringinn í Höggmyndagarðinum í sumar þar til í ágúst. Meira
Menning 14. maí 2013 13:00

Ekki annað í boði en að leika yngra fólk

Kynslóðaskipti eru að verða í íslenskum stjórnmálum og yngra fólk að koma inn fyrir það eldra. Meðlimir Spaugstofunnar hafa ekki farið varhluta af þessu. Meira
Menning 14. maí 2013 15:00

Hangir á hvolfi til að losna við ritstíflu

Nýjasta bók Dans Brown kemur út í dag. "Við erum á of litlum markaði til að senda þýðanda út,“ segir Guðrún Vilmundardóttir hjá Bjarti en erlendir þýðendur þurftu að fara í lokaðar búðir til að ... Meira
Menning 13. maí 2013 15:53

Baltasar byrjaði skandinavíska spennumyndaæðið

Baltasar Kormákur hratt af stað skandinavísku spennumyndaæði í Bandaríkjunum samkvæmt The New York Times, en blaðið fjallaði ítarlega um Baltasar á dögunum. Meira
Menning 13. maí 2013 14:20

Game of Thrones vann til áhorfendaverðlauna

Þriðja þáttaröðin af Game of Thrones vann áhorfendaverðlaunin á sjónvarpsverðlaunahátíðinni sem haldin var í London í gærkvöld. Þetta voru einu verðlaunin sem áhorfendur gátu kosið um. Game of Thrones... Meira
Menning 11. maí 2013 13:00

Lifa í dagdraumunum

Við erum bara dugleg að láta drauma okkar rætast,“ segja þau Svavar Pétur og Berglind í kór, sitjandi í eldhúsinu þar sem Bulsurnar urðu til, sötrandi kaffi með flóaðri mjólk eins afslöppuð og n... Meira
Menning 11. maí 2013 12:00

Stjórnar íslenska flotanum

Hafið er mér mikill innblástur og býr yfir djúpum leyndardóm og sannleik rétt eins og tónlistin fyrir mér. Meira
Menning 11. maí 2013 07:00

Tvíhöfðabræður búa til glænýtt grín

Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson sömdu grínatriði fyrir söfnunarþátt Landsbjargar sem verður sýndur í Sjónvarpinu í lok þessa mánaðar. Meira
Menning 11. maí 2013 07:00

Gaman að vinna með John Cusack

Kvikmyndatökumaðurinn Óttar Guðnason starfaði með John Cusack við tökur á The Numbers Station. Meira
Menning 11. maí 2013 07:00

Skjaldborg fer fram í ágúst

Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg fer fram á Patreksfirði dagana 15. til 17. ágúst en ekki um hvítasunnuhelgina líkt og áður. Meira
Menning 11. maí 2013 00:01

Lúta eigin lögmálum

Það er mikið um að vera í Frystihúsinu við Hafnarbraut þessa dagana. Þar býr og starfar ljósmyndarinn Spessi, sem á Listahátíð mun sýna í Ljósmyndasafninu myndir sem hann tók af mótorhjólaköppum í Kan... Meira
Menning 10. maí 2013 12:45

Glæsileg dagskrá á Shorts & Docs-hátíðinni

Við hvetjum lesendur til að gefa sér nokkrar mínútur til að skoða þessi skemmtilegu sýnishorn. Reykjavík Shorts & Docs-hátíðin stendur yfir þar til á fimmtudaginn í næstu viku og er af nægu að taka. Meira
Menning 09. maí 2013 08:00

Hrollvekjur og heimildarmyndir

Hrollvekjan Mama og heimildarmyndin Mission to Lars verða frumsýndar í bíóhúsum um helgina. Meira
Menning 09. maí 2013 07:00

Stutt- og heimildarmyndir í Paradís

Bíóhátíðin Reykjavík Short & Docs hefst í dag. Meira
Menning 08. maí 2013 08:00

Fékk ljósmyndaverðlaun í Dubai

Oscar Bjarnason vann til verðlauna fyrir norðurljósamynd frá Straumsvík. Meira
Menning 08. maí 2013 07:00

Skipuleggja hátíð á Stöðvarfirði

Fjögur ungmenni setja á fót tónlistar- og menningarhátíðina Pólar í júlí. Meira
Menning 07. maí 2013 17:00

"Það verður að hafa fyrir þessu“

Börkur Jónsson leikmyndahönnuður hlaut dönsku Reumert-verðlaunin á sunnudag fyrir leikmynd sína í sýningunni Bastarðar. Meira
Menning 07. maí 2013 08:00

Brynja Þorgeirs tekur við Djöflaeyjunni

Tekur við af Þórhalli Gunnarssyni sem ritstjóri menningarþáttarins í Ríkissjónvarpinu. Meira
Menning 07. maí 2013 08:00

Langflestir hafa séð Ófeig í bíó

Um sextán þúsund miðar hafa selst á fjórar íslenskar kvikmyndir á þessu ári. Meira
Menning 03. maí 2013 07:00

Íslensk plaköt fyrir erlendar kvikmyndir

"Ég sá minnst á þetta framtak í einhverri teiknigrúppu á Facebook og ákvað að bjóða mig fram. Sem betur fer fékk ég mynd sem ég þekki,“ segir Sunna Ben, einn rúmlega tuttugu listamanna sem sýna ... Meira
Menning 30. apríl 2013 12:00

Risastór sirkushátíð í Vatnmýrinni í sumar

Fjögur sirkustjöld verða reist. Þorp í anda Bakken í Kaupmannahöfn. Circus Xanti frá Noregi kemur að skipulagningu. Meira
Menning 26. apríl 2013 15:30

Yrkir um fugla, fótbolta og blaðasöluárin

Auðunn Gestsson vann í 30 ár sem blaðasali og á hverjum degi les hann blöðin og klippir út allt um íslenska fótboltann. Nú er hann búinn að gefa út ljóðabókina Ljóðin mín. Meira
Menning 26. apríl 2013 15:00

Myndlistarnemar sýna í Hnitbjörgum

"Það eru mjög margar umsóknir frá erlendum nemendum þannig að áhuginn er bæði innanlands sem utan.“ Meira
Menning 25. apríl 2013 13:00

Prófar í Ósló, Stokkhólmi og Prag

Verið er að undirbúa sýningar á einleiknum How To Become Icelandic in 60 Minutes í Ósló, Stokkhólmi og í Prag. Meira
Menning 25. apríl 2013 08:00

Þekkir söguna betur núna

"Fyrst þegar ég sá handritið hélt ég að ég myndi aldrei ná að læra allan þennan texta. Það kom mér á óvart hvað það tók mig skamman tíma að læra allan textann því ,“ segir leikkonan Rán Ragnarsd... Meira

Tarot

  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Lífið - Yfir / Menning / Heldur íslenska menningarhátíð í Frakklandi
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000