Innlent

Héldu minningarathöfn í Vatnsmýrinni

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Nokkrir lögðu rauðar rósir á bekk í minningarlundinum í Vatnsmýrinni í dag.
Nokkrir lögðu rauðar rósir á bekk í minningarlundinum í Vatnsmýrinni í dag. Aðsend/Ungir jafnaðarmenn
Ungir jafnaðarmenn héldu minningarathöfn við Norræna húsið í dag til minningar um þá sem létu lífið í hryðjuverkunum í Útey þann 22.júlí 2011. Ungir jafnaðarmenn hafa skipulagt slíkar athafnir við minningarlundinn í Vatnsmýri síðustu 6 ár.

Formaður Ungra jafnaðarmanna, Þórarinn Snorri Sigurgeirsson flutti ræðu á fundinum. „Við erum hér saman komin í dag til að minnast fórnarlamba þessarar árásar, og minnumst í leiðinni allra þeirra sem fallið hafa í baráttunni fyrir jafnaðarstefnunni. Við minnumst þeirra hér í dag, en heiðrum þau alla daga, með því að halda baráttunni áfram,“ sagði Þórarinn Snorri meðal annars í ræðu sinni.

Inger Ger Næss, fulltrúi sendiráðs Noregs á Íslandi, flutti einnig ræðu. „Við skulum aldrei gleyma þeim 77 sem létu lífið, flest þeirra ungmenni í upphafi ævi sinnar, sem voru hrottalega myrt, eða særð ævilangt, né skulum við gleyma að þessi árás var tilraun til að ógna og grafa undan lýðræði og mannréttindum,“ sagði Inger.

Fólk lagði leið sína í Vatnsmýrina í dag.Aðsend/Ungir jafnaðarmenn
Nikólína Hildur Sveinsdóttir alþjóðafulltrúi Ungra jafnaðarmanna flutti einnig erindi við athöfnina. Nikólína hefur komið tvisvar til Úteyjar á síðustu misserum og deildi hún reynslu sinni af komu sinni til eyjunnar. „Hvert sem litið er má sjá ummerki árásarinnar, sem er erfitt en mikilvægt. Ummerkin halda minningunni og andanum á lífi. Ég verð aldrei nógu fær til að lýsa þeirri tilfinningu að vera í Útey, því tilfinningarnar eru blendnar. Aðdáun, sorg, gleði, reiði og þakklæti. Ég er þakklát fyrir að fá að heimsækja þennan merka stað og fá tækifæri til að miðla sögunni áfram. Ég er sorgmædd og reið yfir öllum þeim lífum sem var kastað á glæ vegna hugmyndafræði eins manns,“ sagði Nikólína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×