Lífið

Héldu jarðarför fyrir vin sinn eftir að hann eignaðist kærustu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Adam Milner fór í samband og vinir hans söknuðu hans sárt.
Adam Milner fór í samband og vinir hans söknuðu hans sárt. mynd/twitter
Vinir Adam Milner, nemanda við St. Mary‘s-háskólann í Twickenham í Bretlandi, héldu jarðarför fyrir hann á dögunum. Milner var þó ekki látinn í alvörunni heldur bara nýbyrjaður með stelpu og þótti vinum hans leiðinlegt hversu lítið þeir sáu af honum. Þeir ákváðu því að kveðja hann með stæl en á léttu nótunum þó.

„Við búum allir á sömu hæðinni og eyðum miklum tíma saman, förum út og svona,“ segir Ben Hull, vinur Milner, í samtali við BuzzFeed.

„Síðan eignaðist hann kærustu og við sáum alltaf minna og minna af honum.“

Til að sýna að Milner væri dáinn og sambandið hefði tekið hann héldu tíu vinir hans jarðarför. Þeir settu upp borð með mynd af honum ásamt nokkrum af uppáhaldshlutunum hans eins og tölvuleikjum og sígarettum.

Vinir Milner létu kærustuna vita af þessu uppátæki sem fannst þetta allt saman mjög fyndið.

„Hún veit hvernig við erum,“ segir Hull.

Gott grín grín.mynd/twitter





Fleiri fréttir

Sjá meira


×