Viðskipti innlent

Heita vatnið hækkar en rafmagnið lækkar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Útgjöld fjölskyldu í 100 fermetra íbúð með algenga orkunotkun hækka um rúmar 270 krónur á mánuði.
Útgjöld fjölskyldu í 100 fermetra íbúð með algenga orkunotkun hækka um rúmar 270 krónur á mánuði. vísir/valli
Breytingar á verði veituþjónustu Orkuveitunnar um áramótin eru einkum vegna breytinga á lögum um virðisaukaskatt. Hann hækkar á hitaveituna og lækkar á rafmagnið.

Útgjöld fjölskyldu í 100 fermetra íbúð með algenga orkunotkun hækka um rúmar 270 krónur á mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni.

Fram kemur í tilkynningunni að verð Orkuveitunnar á heitu vatni, sem fylgt hefur vísitölu neysluverðs undanfarin misseri, lækkar um 0,1% nú um áramótin. Á móti kemur að virðisaukaskattur á hitaveituna hækkar úr 7% í 11%. Þess vegna má fólk búast við að hitareikningurinn hækki um 3,7% um áramótin.

Virðisaukaskattur á rafmagn – hvorttveggja dreifingar- og söluhlutann – lækkar úr 25,5% í 24%. Þar sem engin breyting verður hjá Orkuveitunni á dreifiverði rafmagns, sem er meira en helmingur rafmagnsreikningsins, birtist sú lækkun beint á rafmagnsreikningum sem 1,2% lækkun.

Vatns- og fráveitugjöld hækka um rúmt prósent

Víða eru vatns- og fráveitugjöld tiltekið hlutfall fasteignamats húseigna. Sú er ekki raunin hjá Orkuveitunni heldur eru gjöldin lögð á miðað við stærð húsnæðis og hafa tekið breytingum með byggingavísitölu. Hún hefur hækkað um 1,26% á árinu.

Vatns- og fráveitur eru undanþegnar virðisaukaskatti þannig að breytingar á honum hafa ekki áhrif á verð fyrir þjónustuna.

Almenn þjónustugjöld Orkuveitunnar breytast ekki um áramót. Þau bera flest virðisaukaskatt í hærra þrepinu, sem lækkar þá þjónustugjöldin samsvarandi. Á vef Orkuveitunnar má finna ýmis góð ráð til að spara og nýta orkuna betur.

Reikningsdæmi miðað við algenga notkun

Hér er dæmi sem sýnir breytingar á verði þjónustu Orkuveitunnar um áramót. Miðað er við 100 fermetra íbúð í Reykjavík þar sem raforkunotkun á ári er 5.000 kílóvattstundir og heitavatnsnotkunin 500 rúmmetrar, sem er algeng notkun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×