Handbolti

Heinevetter: Okkar versti leikur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Doha skrifar
Silvio Heinevetter átti góðan leik þegar Þýskaland mætti Króatíu á HM í handbolta í dag en það dugði ekki til. Króatía vann og Þýskaland þarf að spila um 7. sæti mótsins á morgun.

„Þetta eru mikil vonbrigði,“ sagði hann í viðtali við Arnar Björnsson eftir leik en það má sjá hér fyrir ofan.

„Ég held að þetta hafi verið okkar versti leikur í keppninni. Við spiluðum ekki eins og við höfum gert og þeir skoruðu mörg ódýr mörk í leiknum.“

„Nú verðum við bara að vinna næsta leik. Það er ekkert annað sem kemur til greina. Við verðum bara að sjá til.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×