Lífið

Heimurinn stoppar ekki þó maður eigi afmæli

ADDA SOFFÍ INGVARSDÓTTIR skrifar
Róbert spilar með PSG í París, sem er á toppi frönsku deildarinnar.
Róbert spilar með PSG í París, sem er á toppi frönsku deildarinnar. Nordicphotos/getty
„Þetta leggst nú bara mjög vel í mig. Ég reikna með að eyða deginum bara á æfingu, líkt og aðra daga. Heimurinn stoppar ekki þó maður eigi afmæli,“ segir Róbert sem búsettur er í París ásamt eiginkonu sinni og fjórum börnum þeirra.

„Ég ætla svo bara að hafa kósýkvöld með krökkunum, það er alltaf fastur liður hjá okkur á föstudögum.“ Róbert spilar með Paris Saint Germain, PSG, og hefur gert undanfarin þrjú ár, en liðið tryggði sér efsta sætið í franska handboltanum í vikunni.

„Við héldum að það yrði eitthvað stórmál að vera með börn í stórborg, fólk var búið að tala þannig og vara mann við. Svo er þetta bara rosalega gaman og hér er vel hugsað um okkur. Það er nóg af görðum hérna í kring þar sem við getum farið og þau leikið sér.“ Aðspurður hvernig gangi með frönskuna segir hann þetta allt vera að koma. „Ég get alveg bjargað mér, annað væri líka skrítið eftir þennan tíma. En franskan lá ekki jafn vel fyrir mér og þýskan og danskan, ég viðurkenni það alveg.“

Róbert segir margt standa upp úr á handboltaferlinum. „Eðlilega standa Ólympíuleikarnir 2008 hæst og það að fá silfrið. Annars eru margir bæði liðssigrar og persónulegir sigrar sem standa upp úr.“ Róbert á eitt ár eftir af samningi sínum við PSG og segir ómögulegt að segja til um hvað taki við eftir ár. Hann segir þó að stefnan sé ekki sett heim til Íslands, að minnsta kosti ekki strax.

„Okkur líður vel erlendis og það er svo skrítið að heimþráin virðist minnka með árunum. Annars er ég heppinn að hafa fengið að koma heim í tengslum við landsliðið. Það eru algjör forréttindi að hafa verið í landsliðinu og þar hefur maður kynnst mörgum af sínum bestu vinum í dag.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×