Sport

Heimsmet féll á HM í Herning

Bjarni Þór Sigurðsson skrifar
Guðmundur og Teitur koma í mark báðir á tíma undir gamla heimsmetinu.
Guðmundur og Teitur koma í mark báðir á tíma undir gamla heimsmetinu. mynd/jón björnsson
Tvö ný heimsmet voru sett í 250m skeiði á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Herning sem fram var haldið í dag. Mótinu lýkur á morgun.

Daninn Sören Madsen setti nýtt heimsmet er hann kom í mark á tímanum 21.49 sekúndum. Í síðasta spretti dagsins áttust við þeir Teitur Árnason, nýkrýndur heimsmeistari í gæðingaskeiði, og Guðmundur Einarsson en hann keppir fyrir Svíþjóð.

Svo fór að Guðmundur kom í mark á tímanum 21.49 en hann var aðeins sjónarmun á undan Teiti sem hlaut tímann 21.52. Báðir tímarnir voru undir eldra heimsmeti. Guðmundur hlaut gull í greininni, Teitur brons en Madsen fékk silfrið. Á morgun verður keppt í 100 metra skeiði.

Tveir knapar riðu sig inn í úrslitin

Stór hluti dagsins var undirlagður keppni í B-úrslitum en þar var keppt um síðasta lausa sætið í úrslitunum sem fram fara á morgun. 

Kristín Lárusdóttir, á Þokka frá Efstu-Grund, og Eyjólfur Þorsteinsson, á Óliver frá Kvistum, komust í úrslit í dag með sigri í B-úrslitunum. Eyjólfur og Óliver munu keppa í fimmgangi en Kristín og Þokki í fjórgangi og fimmgangi. Hreint út sagt frábær árangur hjá Kristínu. Gústaf Ásgeir Hinriksson, á Geisla frá Svanavatni, varð hins vegar í þriðja sæti í B-úrslitunum í fimmgangi ungmenna og fær brons að launum.

Í yfirlitssýningu stóðhesta bar helst til tíðinda að Glóðafeykir frá Halakoti hækkaði fyrir skeið, tölt og brokk og er nú efstur stóðhesta sjö vetra og eldri. 

Ekki var laust við að tár hafi sést á hvarmi Íslendinganna er þeir fylgdust með Glóðafeyki en árið 2012 reið Einar Öder Magnússon Glóðafeyki til sigurs á Landsmóti. Einar lést í febrúar aðeins 52 ára að aldri. Á mótinu tók Svanhvít Kristjánsdóttir, ekkja Einars, við viðurkenningu sænska Íslandshestafélagsins fyrir störf Einars.


Tengdar fréttir

Jóhanna missti naumlega af gullinu

Æsispennandi úrslitum í slaktaumatölti T2 lauk með sigri Lucie Maxheimer frá Þýskalandi á heimsmeistaramóti íslenska hestsins.

Einar Öder fallinn frá

Einar Öder Magnússon, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands í hestaíþróttum og einn færasti knapi og hrossaræktandi landsins, er fallinn frá.

Íslendingar gera það gott

Þrír íslenskir keppendur eru meðal 5 efstu í forkeppni í tölti á heimsmeistaramóti íslenska hestsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×