Sport

Heimsmeistarinn Júlían: Þetta var uppskeruárið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
„Þetta var ekkert mál, þetta var fislétt. Í raun var lítil keppni fyrir mig en titilinn var eitthvað sem mig langaði í og þurfti að fá,“ sagði kraftlyftingakappinn Júlían J.K. Jóhannsson í samtali við Guðjón Guðmundsson í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Júlían varði um helgina heimsmeistaratitil sinn í flokki 23 ára og yngri á HM í Póllandi. Júlían keppti í +120 kg flokki og vann öruggan sigur.

„Ég lyfti 1080 kg í samanlögðu, var tæpum 200 kg á undan næsta manni, þannig að þetta voru miklir yfirburðir. En ég var alveg tilbúinn í þetta mót og tilbúinn í opna flokkinn sem ég er búinn að undirbúa mig fyrir undanfarin ár,“ sagði Júlían sem er á sínu síðasta ári í U-23 ára flokki.

„Þetta átti að vera svona uppskeruár. Það er búið að ganga á ýmsu undanfarin ár. Stundum hefur gengið vel og stundum mjög illa.“

Svona árangur næst ekki nema með þrotlausum æfingum. En hvað æfir Júlían oft í viku?

„Það er mismunandi og fer eftir æfingatímabilum en að meðaltali svona 5-6 sinnum. Þar af eru þrjár mjög langar æfingar sem standa í 4-5 tíma,“ sagði Júlían sem keppir á HM fullorðina í Bandaríkjunum í lok árs.

„Aðalmarkmiðið er að komast inn á Heimsleikana sem eru svona Ólympíuleikar kraftlyftinganna. Þetta er fjölgreina mót sem er haldið á fjögurra ára fresti og verður í Póllandi á næsta ári,“ sagði Júlían.

Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×