Matur

Heimsins besta humarsúpa

Eva Laufey Kjaran skrifar
VISIR.IS/EVALAUFEY
Lúxus humarsúpa

Humarsoð

Smjör

600-700 g humarskeljar

2 stilkar sellerí

3 gulrætur

1 laukur

2-3 lárviðarlauf

3-4 hvítlauksrif

3-4 tímían greinar

1 tsk eftirlæti hafmeyjunnar

1 tsk Ítölsk sjávarréttakryddblanda

1 l fiskisoð (soðið vatn + 2 fiskikraftsteningar)

1 glas hvítvín (ca 3 dl)

Salt og pipar

Aðferð

Skolið humarinn mjög vel og takið humarhalana upp úr skelinni. Leggið halana til hliðar. Skerið sellerí, gulrætur og lauk gróft. Steikið upp úr smjöri ásamt humarskeljum. Hellið fiskisoði og hvítvíni yfir, kryddið til með þeim kryddum sem talin eru upp hér að ofan. Leyfið soðinu að malla við vægan hita í rúmlega klukkstund, því lengur sem soðið fær að malla því betri verður súpan. Eftir þann tíma sigtið þá skeljarnar og grænmetið frá.

Súpan

2 msk hveiti

2 msk smjör

Humarsoðið

Smjör

Humarhalar

1 hvítlauksrif

½ tsk eftirlæti hafmeyjunnar

½ ítölsk sjávarréttarblanda

500 ml rjómi

salt og pipar

fersk steinselja 

Aðferð

Búið þið til smjörbollu með því að bræða smjör og blanda hveiti saman við, hellið síðan soðinu út í pottinn og hrærið. Á annarri pönnu hitið smjör, steikið humarhala og kryddið til með eftirlæti hafmeyjunnar, sjávarréttakryddi, salti, pipar og hvítlauk. Steikið humarinn í 2 – 3 mínútur. Hellið rjómanum út á pönnuna og blandið öllu vel saman, hellið rjómablöndunni út í pottinn með soðinu og leyfið súpunni að malla í smá stund áður en þið berið hana fram. Saxið niður ferska steinselju og sáldrið yfir rétt áður en þið berið súpuna fram.

Njótið vel. 

Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×