Lífið

Heimsfræg kynlífsatriði sem gefa ekki rétta mynd af kynlífi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessi atriði er vel þekkt.
Þessi atriði er vel þekkt. vísir
Kynlíf er oft mjög fyrirferðamikið í kvikmyndum og eru slík atriði oft gríðarlega magnþrungin og ná að fanga athygli áhorfandans.

Sum atriðin eru algjör klassík og oft á tíðum eftirminnilegustu atriðin í kvikmyndum. Á síðunni Viral Thread má aftur á móti finna lista yfir fræg kynlífsatriði sem gefa ekki rétta mynd af kynlífi í raun og veru.

1. Ghost: Demi Moore & Patrick SwayzeÞetta atriði myndi aldrei ganga upp. 

2. Pretty Woman: Julia Roberts & Richard GereÞað er mjög líklega ekki gott að stunda kynlíf ofan á píanói.

3. 40 Days and 40 Nights: Josh Hartnet & Shannyn SossamonKona getur mjög líklega ekki fengið fullnægingu án þess að hún sé snert. Það gerðist einmitt í þessu atriði.

4. Romeo and Juliet: Leonardo DiCaprio & Claire DanesÞað að stunda kynlíf undir rúmteppinu skapar bara mjög þungt loft og líklega verður erfitt að anda innans skamms. 

5. The Notebook: Ryan Gosling & Rachel McAdamsRachel McAdams var farin að stynja langt áður en hún snerti Ryan Gosling. 

6. Titanic: Kate Winslet & Leonardo DiCaprioKynlíf inni í bíl er aldrei eins og gott og það leit út fyrir að vera í Titanic. 

7. Notting Hill: Julia Roberts & Hugh GrantÞað lítur enginn svona vel út, eins og Julia Roberts í Notthing Hill, eftir heila nótt. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×