Lífið

Heimsfræg förðunarstjarna fær yfir sig skítkast

Stefán Árni Pálsson skrifar
Em Ford er gríðarlega vinsæl á Youtube.
Em Ford er gríðarlega vinsæl á Youtube.
Em Ford heldur úti förðunarsíðu á YouTube sem kallast My Pale Skin og er hún einskonar stjarna í förðunarheiminum.

Húðin á Ford hefur verið vandamál og því þarf hún að hylja bólur og mikinn roða. Fyrir þremur mánuðum fór hún að birta myndir af sér algjörlega ómáluð.

Eftir það fékk hún þúsundir skilaboða og athugasemdir um það hversu ljót og ógeðslega hún væri. Einnig hefur hún náð til margra unglinga sem glíma við sama vanda og hún og hefur Em Ford verið mikil fyrirmynd í þeim efnum.

Nýjasta myndbandið á síðu hennar er sláandi og má þar sjá muninn á athugasemdum frá fólki út í hinum stóra heimi, eftir því hvort hún sé máluð eða ekki. Myndbandið má sjá hér að neðan og heitir það „Þú lítur ógeðslega út.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×