Fótbolti

Heimir um Lars: „Við höfum aldrei rifist“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson hafa starfað vel saman.
Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson hafa starfað vel saman. vísir/getty
„Auðvitað verður hans sárt saknað,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson á blaðamannafundi íslenska landsliðsins í dag. Hann var þá spurður út í þá staðreynd að Lars Lagerbäck mun hætta sem þjálfari íslenska liðsins eftir EM í Frakklandi.

„Við vissum að þetta myndi gerast einn daginn. En hann mun skilja við okkur í góðum höndum Heimis sem hefur lært mikið af honum,“ sagði Aron Einar.

Sjá einnig:Heimir: Íslendingar halda alltaf að þeir muni vinna Eurovision



Sjálfur sagði Heimir að Ísland hafi dottið í lukkupottinn þegar KSÍ tókst að ráða Lars Lagerbäck á mun lægri launum en maður með hans reynslu hefði getað fengið hjá stærra landsliði.

„Við vorum afar heppnir að fá mann með jafn mikla reynslu og þekkingu og hann býr yfir. Það var okkur mjög til happs að hann var laus árið 2011.“

„Enginn okkar í KSÍ hefur reynslu af því að keppa á stórmóti og því er það frábært fyrir okkur öll að hafa einhvern eins og Lars sem hefur upplifað þetta allt saman áður.“

Heimir var spurður hvernig samstarfið hefði gengið og hvernig þeim hefði tekist að takast á við ágreining þeirra á milli.

„Okkur hefur alltaf tekist að ræða um hlutina án þess að það komi til ágreinings. Það er örugglega eitthvað sænskt því ekki er það íslenska leiðin,“ sagði Heimir.

„Við tölum saman þar til að við erum báðir sáttir við lausnina. Annars reyni ég bara að tala meira en hann,“ sagði hann í léttum dúr.

Aron Einar segir að stærsti kostur Lars sé hversu reyndur hann er. En hann stendur líka fast á sínu, án þess að skipta skapi.

„Ég hef aldrei séð hann reiðast. Ég hef heldur ekki séð þennan mann reiðan,“ sagði hann og benti á Heimi. „Ég veit ekki hvað er að honum,“ bætti hann við í léttum dúr.

„Heimir hefur lært mikið af honum. Hann er af nýrri kynslóð þjálfara sem nýtir til dæmis mikið af tölfræði. Þeir hafa notið góðs af því að starfa saman.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×