Íslenski boltinn

Heimir skrifaði undir tveggja ára samning

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Birgir og Heimir skrifa undir samninginn í kvöld.
Birgir og Heimir skrifa undir samninginn í kvöld. mynd/fh
Heimir Guðjónsson verður áfram þjálfari FH, en hann skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við Hafnafjarðarfélagið í kvöld.

Þetta kemur fram á heimasíðu FH, en Heimir hefur stýrt liðinu frá því 2008 þegar hann tók við af Ólafi Jóhannessyni.

Heimir hefur gert FH þrisvar sinnum að Íslandsmeisturum og einu sinni að bikarmeisturum, en hann missti af fjórða Íslandsmeistaratitlinum á lokadegi Íslandsmótsins í sumar.

„Við erum gríðarlega ánægðir með það að Heimir verði áfram hjá FH. Hann er að okkar mati í hópi besti þjálfara landsins,“ segir Birgir Jóhannson, framkvæmdastjóri FH, á heimasíðu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×